Fara í efni
Mannlíf

Arna Sif orðin þriðja leikjahæst í efstu deild

Arna Sif Ásgrímsdóttir í leiknum gegn Víkingi í dag - 279. leik sínum í efstu deild á Íslandi. Mynd: Ármann Hinrik.

Arna Sif Ásgrímsdóttir, fyrirliði fótboltaliðs Þórs/KA, varð í dag þriðja leikjahæsta konan í sögu efstu deildar á Íslandi. Viðureign dagsins gegn Víkingi var 279. leikur Örnu í deildinni. Víðir Sigurðsson, reyndasti íþróttafréttmaður landsins og höfundur bókanna Íslensk knattspyrna síðustu áratugi, segir frá þessu á Facebook síðu sinni í dag.

Víðir skrifar:
 
Arna Sif Ásgrímsdóttir, sem tók við fyrirliðabandinu hjá Þór/KA þegar Hulda Björg Hannesdóttir slasaðist í vor, lék sinn 279. leik í efstu deild á Íslandi í dag þegar Þór/KA tapaði 6-4 fyrir Víkingi á Þórsvellinum. Þar með fór hún fram úr Fanndísi Friðriksdóttur og er orðin þriðja leikjahæst í sögunni. Aðeins Siglfirðingurinn Sandra Sigurðardóttir (337 leikir) og Valsarinn Málfríður Erna Sigurðardóttir (310 leikir) eru fyrir ofan hana.
 
Arna, sem er 33 ára gömul og varð fyrr í vor fyrst leikmanna Þórs/KA til að spila 200 leiki fyrir liðið í deildinni, gæti náð öðru sætinu af Málfríði seinni hluta tímabilsins 2027 og jafnvel slegið met Söndru undir lok tímabilsins 2028 ef hún heldur áfram af fullum krafti í deildinni og missir ekki af mörgum leikjum.
 
En til þess að Arna geri það undir merkjum Þórs/KA þarf Akureyrarliðið að hrista af sér verstu byrjun sína í deildinni í 25 ár. Þór/KA er aðeins með 2 stig eftir fyrstu sjö leikina og eins og áður hefur komið fram er þetta versta byrjun liðsins í deildinni frá árinu 2001 þegar það tapaði sjö fyrstu leikjum sínum.
 
  • Umfjöllun akureyri.net um leikinn í dag: