Börn úr elstu deildum leikskólanna Hólmasólar og Iðavallar sungu nokkur lög fyrir forsetahjónin við fánastöngina stóru efst í Listagilinu og Heimir Örn Árnason, formaður bæjarráðs, dró síðan fána Akureyrarvöku að húni. Forsetinn brá á leik með börnunum þe
Börn úr elstu deildum leikskólanna Hólmasólar og Iðavallar sungu nokkur lög fyrir forsetahjónin við fánastöngina stóru efst í Listagilinu og Heimir Örn Árnason, formaður bæjarráðs, dró síðan fána Akureyrarvöku að húni. Forsetinn brá á leik með börnunum þegar þau sungu „Ef sólin væri á bragðið eins og sleikjó ...“ Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson