Fara í efni
Íþróttir

Duffys gallabuxur og fleira frá Heklu

SÖFNIN OKKAR – 127

Frá Iðnaðarsafninu á Akureyri_ _ _

Akureyri.net heldur áfram að opna dyr safnanna í bænum lesendum til fróðleiks og skemmtunar. Það er gert vikulega, á fimmtudögum.


Áttir þú eða manst eftir hinum vinsælu Duffys buxum? Vissir þú að þær voru framleiddar á Akureyri? Á níunda áratug síðustu aldar nutu Duffys buxur mikilla vinsælda meðal ungmenna hér á landi. Safngripur eða gripir vikunnar eru buxur og annar fatnaður frá Duffys sem varðveitt er á Iðnaðarsafninu á Akureyri.

Árið 1946 keypti Samband íslenskra samvinnufélaga (SÍS) Prjónastofu Ásgríms Stefánssonar, sem Ásgrímur hafði stofnað fjórum árum áður á Akureyri ásamt konu sinni Guðrúnu Adolfsdóttur. Út frá þeim kaupum varð Fataverksmiðjan Hekla til. Ásgrímur var verksmiðjustjóri Heklu í 30 ár, eða frá 1948–1978. Þegar hann hætti voru tvær deildir hjá Heklu; prjónadeild sem framleiddi að mestu peysur úr ullarefnum frá Gefjun og vinnufatadeild, þar sem helstu vörur voru úlpur og buxur.

Eftirmaður Ásgríms var Sigurður Arnórsson og rekstrarstjóri var þá Alfreð Almarsson. Um þessar mundir var eftirspurn eftir merkjavöru og tískufatnaði mikil, einkum meðal unga fólksins. Hekla framleiddi þá buxur á börn og fullorðna, en buxur á unglinga vantaði. Gripu hinir nýju forsvarsmenn Heklu tækifærið og hönnuðu nýjar buxur með laðandi erlendu heiti, Duffys. Buxurnar voru settar á markaðinn síðsumars 1978 og urðu strax ákaflega vinsælar. Í viðtali sem tekið var við þá félaga um mánuði síðar í tímaritinu Frjáls verslun kom fram að Hekla hefði varla undan að framleiða buxur. Buxurnar voru raunar þær ódýrustu á markaðnum og gátu því fleiri eignast þær. Brátt var ekki nokkur unglingur maður með mönnum nema að hann ætti Duffys buxur! Má því með sanni segja að Sigurði og Alfreð hafi tekist ætlunarverk sitt; að skapa vinsæla en jafnframt ódýra merkjavöru.


Fljótlega bættist við annar fatnaður undir merkjum Duffys, svo sem skór og skíða- og prjónavesti. Buxurnar voru þó áfram vinsælastar og megin framleiðslan, einkum gallabuxur. Einnig setti Hekla á markaðinn fleiri merkjavörur með erlendum heitum. Ber þar helst að nefna Act skóna, sem tóku við af Iðunnarskóm og áttu margir slíka skó. En þegar líða tók á níunda áratuginn reyndist reksturinn sífellt erfiðari og kom þar einkum til minnkandi sala í útlöndum. Um áramótin 1987–1988 sameinuðust iðnaðardeildir SÍS Álafossi hf. og þar með lagðist Heklunafnið niður. Framleiðsla fatnaðarins hélt þó áfram, en með falli Sovétríkjanna datt niður stærsti hluti utanlandsmarkaðarins og var Álafoss hf. lýst gjaldþrota í júní 1991. Við það misstu 190 manns vinnuna á Akureyri.