Fara í efni
Fréttir

„Ómálaður striginn er eina dýptin í myndinni“

SÖFNIN OKKAR – 121

Frá Listasafninu á Akureyri_ _ _

Akureyri.net heldur áfram að opna dyr safnanna í bænum lesendum til fróðleiks og skemmtunar. Það er gert vikulega, á fimmtudögum.


Sigurður Árni Sigurðsson (f. 1963) hefur starfað sem myndlistarmaður í Reykjavík og í Frakklandi frá því hann lauk námi við Institut des Hautes Études en Art Plastiques í París árið 1991. Hann hefur haldið fjölda einkasýninga og tekið þátt í samsýningum hér á landi og erlendis. Verk eftir hann eru í eigu helstu listasafna Íslands auk opinberra og einkasafna í Evrópu.

Hann hefur unnið opinber verk þar sem myndlist, rými og umhverfi fléttast saman, meðal annars Sólöldu við Sultartangavirkjun (2000), Samhengi í Landsbanka Íslands (2005), Ljós í skugga á Akureyri (2006) og L’Éloge de la Nature í Suður-Frakklandi (2011).

Sigurður Árni var fulltrúi Íslands á Feneyjatvíæringnum 1999 og verk hans var valið sem eitt af táknum Reykjavíkur sem menningarborgar Evrópu árið 2000. Hann var einnig bæjarlistamaður Akureyrar 2000–2001.

Hann hefur sinnt kennslu og starfað sem gestakennari við Listaháskóla Íslands og í Frakklandi.

Sigurður Árni Sigurðsson var meðal þeirra listamanna sem áttu verk á opnunarsýningu Listasafnsins á Akureyri árið 1993, þar sem hann sýndi verkið Blá geymsla. Í bókinni Listasafnið á Akureyri: Opnunarsýning 28. ágúst – 30. september 1993, sem gefin var út í tilefni opnunar safnsins kemur fram að á áttunda og níunda áratugnum hafi straumur ungs fólks sem hélt til náms erlendis frá Akureyri og nágrannrabyggðarlögum aukist verulega. Ungu listamennirnir sem áttu verk á opnunarsýningu safnsins endurspegluðu þessa þróun. Þau fylgdu hvorki einum áhrifastraumi né sameiginlegri stefnu – þvert á móti fór hvert þeirra sína leið í listsköpun sinni, með ólík viðfangsefni og áherslur.

Verkið Blá geymsla sýnir ómálaða hringi á bláum fleti.

Í umfjöllun um sýninguna sem birtist í Morgunblaðinu 4. september árið 1993 segir Sigurður Árni. „Ómálaður striginn er eina dýptin í myndinni. Ég get hamast við að mála en liturinn er aðeins filma og allt í einu orðinn að dauðum hlut. Fyrir aftan hann er óravídd, sem gefur frá sér birtu og verður ekki snert. Það er þetta sem mér finnst vera fallegt.“

Heimildir:

Listasafnið á Akureyri opnað. (1993, 4. september). Morgunblaðið [Menning listir], bls. 2C.

Listasafnið á Akureyri: Opnunarsýning 28. ágúst–30. september 1993 (1993, bls. 44–45). Listasafnið á Akureyri.