KA á botninum þrátt fyrir stig gegn Fram
KA heimsótti Fram í Úlfarsárdal í efstu deild karla í knattspyrnu í dag, þar sem 2:2 jafntefli varð niðurstaðan. Þótt KA-menn hefðu tvívegis náð forystunni í leiknum eru þeir eflaust sáttari við úrslitin en heimamenn en Framarar voru lengst af sterkari aðilinn í leiknum. Úrslitin þýða að KA er í neðsta sæti deildarinnar þegar ein umferð er eftir af hefðbundinni deildarkeppni.
Framarar byrjuðu leikinn betur og sóttu talsvert í byrjun leiks. En það voru KA-menn sem náðu forystunni á 14. mínútu eftir frábæra skyndisókn. Þeir leystu pressu Framara vel, Markús Máni Pétursson fékk boltann vinstra megin frá Ívari Arnbro Þórhallssyni markverði og kom honum á Jakob Snæ Árnason. Jakob sendi knöttinn áfram á hárréttum tíma á Hallgrím Mar Steingrímsson við miðjubogann og Hallgrímur sendi eitraða sendingu á bak við varnarmenn Fram á Guðjón Erni Hrafnkelsson, sem kom á sprettinum upp vinstri kantinn. Guðjón lék inn í vítateig og renndi knettinum í fjærhornið framhjá Viktori Frey Sigurðssyni í marki Fram. Hans fyrsta mark í Bestu deildinni í sumar.

Guðjón Ernir Hrafnkelsson skoraði fyrra mark KA í dag eftir frábæra skyndisókn. Mynd: Ármann Hinrik.
Tvær skiptingar vegna meiðsla snemma leiks
Stuttu eftir markið þurftu þeir Jakob Snær og Kári Gautason báðir að fara út af vegna meiðsla en meiðslalisti KA í sumar er orðinn ansi langur. Framarar virtust slegnir út af laginu eftir markið og KA-menn voru sprækari næsta korterið. Hins vegar voru það Framarar sem jöfnuðu leikinn á 33. mínútu. Kennie Chopart tók innkast við hornfánann og grýtti boltanum inn í teig. Kyle McLagan kom á ferðinni, var ákveðnari en varnarmenn KA, stökk upp og sneiddi boltann laglega í háum boga í fjærhornið. Ekki fyrsta markið sem KA fær á sig í sumar þar sem varnarmennirnir hefðu getað verið talsvert grimmari. Eftir markið náðu Framarar aftur tökum á leiknum og til marks um sóknarþungann fengu þeir 7 hornspyrnur í fyrri hálfleik en KA enga. Varnarleikur KA var hins vegar vel skipulagður í þriggja miðvarða kerfi Hans Viktors Guðmundssonar, André Rømer og Markúsar Mána Péturssonar.
Í seinni hálfleik héldu Framarar áfram að sækja. Líklega var hornspyrnan sem þeir fengu á 50. mínútu þeirra tíunda – en hún var hreinsuð út úr teignum. Adam Ægir Pálsson fékk boltann og gerði sér lítið fyrir og hljóp af sér tvo varnarmenn Fram, fór alla leið inn í vítateig og skoraði örugglega framhjá Viktori Frey. Hans fyrsta mark fyrir KA í sumar. Að öðru leyti voru sóknartilburðir KA ekki að valda Frömurum miklum vandræðum í seinni hálfleik.
Framarar pressuðu áfram, án þess þó að ná að komast gegnum varnir KA-liðsins. Það var ekki fyrr en á 80. mínútu að jöfnunarmarkið kom og trúlega var lítið hægt að gera til að verjast því. Kristófer Konráðsson lék af hægri kantinum í áttina að vítateig KA og lét vaða fyrir utan teig. Stórglæsilegt skot sem fór í þverslá og inn.
Framarar nálægt sigurmarkinu
Á 89. mínútu munaði litlu að Framarar næðu að tryggja sér sigurinn. Þeir náðu að opna KA-vörnina loksins og Ægir Jarl Jónasson fékk boltann aleinn við vítapunktinn. Hann hefði getað tekið sér tíma og lagt boltann fyrir sig en skaut viðstöðulaust, hitti boltann illa og hann fór framhjá markinu.
2:2 jafntefli niðurstaðan, í leik þar sem Fram réði ferðinni lengst af en KA-liðið, sem hefur fengið mörg mörk á sig að undanförnu, var mjög skipulagt og Framarar fundu engar glufur. Miðverðirnir þrír voru afar traustir og vel studdir af miðjumönnum fyrir framan sig. Sóknarleikur KA er hins vegar áfram jafn bitlaus og undanfarið og ljóst að finna þarf lausnir á markaskortinum í fallbaráttuslagnum sem framundan er. Eftir leikinn er KA í neðsta sæti deildarinnar, með jafnmörg stig og ÍBV og stigi minna en Þór.
KA: Ívar Arnbro Þórhallsson – Hans Viktor Guðmundsson, André Rømer, Markús Máni Pétursson – Kári Gautason (Snorri Kristinsson 19.), , Mikael Breki Þórðarson, Jakob Snær Árnason (Jeppe Pedersen 18.), Guðjón Ernir Hrafnkelsson – Valdimar Logi Sævarsson (Danijel Dejan Djuric 65.), Adam Ægir Pálsson (Diego Montiel 82.), Hallgrímur Mar Steingrímsson.
21 umferð er að baki og því einungis einn leikur eftir þar til deildinni verður skipt í tvennt. Sex efstu halda áfram baráttu um Íslandsmeistaratitilinn og mætast innbyrðis í einfaldri umferð, rétt eins og sex neðstu liðin gera. Tvö neðstu að þeirri viðbót lokinni falla.
Síðasti leikur KA er heimaleikur gegn Breiðabliki, sem er í 4. sæti.
- Sunnudag 6. september 14:00
KA - Breiðablik