Fara í efni
Fréttir

Arnór Ísak og Bruno framlengja við KA

Bjarni Jónasson, stjórnarmaður í handknattleiksdeild KA, og Arnór Ísak Haddsson. Mynd af vef KA.

Arnór Ísak Haddsson og Bruno Bernat framlengdu í gær samninga sína við handknattleiksdeild KA til tveggja ára. Þetta kemur fram á heimasíðu félagsins í dag.

„Báðir spiluðu þokkalegt hlutverk á síðasta ári þegar að KA komst alla leið í bikarúrslitin. Þeir eru báðir uppaldir í gegnum yngriflokkastarf félagsins og eru fæddir árið 2002. Arnór hefur verið viðloðandi yngri landslið Íslands í gegnum tíðina og Bruno hefur verið einn efnilegasti markmaður landsins,“ segir á vef KA. „Arnór spilar sem leikstjórnandi og hefur gríðarlegan kraft og sprengju sem varnarmenn andstæðinganna óttast oft og tíðum. Eitt helsta kennimerki Bruno, fyrir utan frábærar vörslur, eru magnaðar sendingar upp völlinn sem gefa oft góð hraðaupphlaupsmörk.“

Bruno Bernat. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson