Fara í efni
Vigfús Sigurgeirsson

Millileikur – eitthvað einstakt og grípandi

AF BÓKUM – 75

Starfsfólk Amtsbókasafnsins á Akureyri segir lesendum Akureyri.net alla þriðjudaga frá bók eða bókum. Það vekur vonandi athygli á bókakosti safnsins, þar sem af nógu er að taka, og glæðir áhuga sem flestra á bóklestri.
 

Í dag skrifar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir_ _ _

Írski rithöfundurinn Sally Rooney hefur vakið mikla athygli síðustu ár. Hún hefur einstakt lag á að skrifa um mannleg samskipti, stéttaskiptingu og veruleika fólks í nútímasamfélagi.

Millileikur er fjórða skáldsaga hennar og fjallar um tvo bræður sem virðast ekki eiga neina samleið í lífinu.

Eldri bróðirinn, Pétur, er lögmaður og er mikið í mun að halda virðulegri ímynd. Út á við virðist honum ganga allt í haginn en í einkalífinu er þó allt á hvolfi. Hann á í mjög flóknu sambandi við fyrrverandi kærustu sem hann er enn ástfanginn af, en hann á líka í hálfgerðu „sykurpabba“ sambandi við mun yngri konu. Hann virðist alltaf vera á yfirsnúningi og r

eynir að deyfa sig með áfengi, lyfjum og kynlífi.

Yngri bróðirinn, Ívan, er útbrunninn skáksnillingur. Hann er bara rétt skriðinn yfir tvítugt en finnst hann hafa staðnað og veit ekkert hvað hann á að gera við líf sitt. Þegar hann er fenginn til þess að taka þátt í skákviðburði í menningarmiðstöð smábæjar kynnist hann óvænt Margréti, nýfráskilinni konu á fertugsaldri og með þeim hefst eldheitt ástarsamband.

Þeir bræður hafa nýlega misst föður sinn og hefur missirinn enn frekar dýpkað gjána á milli þeirra. Yngri bróðurnum finnst sá eldri vera algjör hræsnari og að sama skapi þykir eldri bróðurnum sá yngri vera hálfgerður aumingi.

Kaflarnir fjalla til skiptis um þá bræður en það sem er sérlega áhugavert er að stíllinn er gjörólíkur eftir því hvort kaflinn fjallar um eldri eða yngri bróðurinn. Kaflar Péturs eru knappir og beittir, vaðið úr einu í annað, sem endurspeglar á vissan hátt óreiðuna innra með honum – hann stoppar aldrei til þess að takast á við eigin tilfinningar. Kaflar Ívans eru aftur á móti rólegri og jarðbundnari, allar setningar eru fullkláraðar. Eftir að hann kynnist Margréti er eins og hann vakni af dvala og það birtir yfir í köflunum sem fjalla um hann.

Millileikur var víða tilnefnd sem ein af bestu bókum ársins 2024 og var í öðru sæti GoodRead Choice Awards fyrir bestu skáldsöguna. Sjálf er ég ekki hissa á þeim frábæru viðtökum sem bókin hefur fengið, enda er eitthvað einstakt og grípandi við það hvernig Sally Rooney skrifar.