Fara í efni
Vigfús Sigurgeirsson

Eyjamenn í Þorpinu – hjólreiðar í Kjarnaskógi

Það verða mikilvæg þrjú stig í boði þegar Þór tekur á móti ÍBV í 10. umferð Bestu deildar karla í dag. Bæði lið eru nálægt botninum, ÍBV í 11. sæti með fimm stig og Þór sætinu ofar með stigi meira. Eftir sex töp í röð hafa Eyjamenn náð sér í fjögur stig í síðustu tveimur leikjum, en liðið vann sinn fyrsta sigur í mótinu í 9. umferðinni gegn Keflavík. Eftir sex stig í fyrstu þremur leikjunum hefur gengi Þórsliðsins aftur á móti valdið vonbrigðum og hefur liðið nú tapað sex leikjum í röð.

  • Besta deild karla í knattspyrnu, 10. umferð
    Þórsvöllur (VÍS-völlurinn, gervigras sunnan við Bogann) kl. 17
    Þór - ÍBV

Eyjamenn leika undir stjórn Alexandars Linta, sem lék með Þór á árum áður.

Krakkarnir hjóla í Kjarnaskógi

Krónuhjólreiðamótið, samstarfsverkefni Hjólreiðafélags Akureyrar, Akureyrardætra og Krónunnar, fer fram í Kjarnaskógi í dag, sunnudaginn 14. júní. Mótið er ætlað öllum krökkum á aldrinum 2-12 ára.
  • Krónuhjólreiðamótið
    Kjarnaskógur kl. 9-13.
Að auki verður boðið upp á sýningu BMX Brós kl. 11 við Kjarnakot.
 
Nánari upplýsingar um mótið má finna undir Facebook-viðburði HFA: Krónuhjólamót á Akureyri | Facebook