Fara í efni
Umhverfismál

Mikill gleðidagur sem markar nýjan kafla

Alma D. Möller heilbrigðisráðherra flytur ávarpar þegar fyrsta skóflustungan að nýbyggingu við Sjúkrahúsið á Akureyri var tekin í dag. Myndir: Skapti Hallgrímsson

„Þetta er mikill gleðidagur og við fögnum uppbyggingu á stórglæsilegri byggingu sem mun breyta miklu í þjónustu við sjúklinga og aðstöðu okkar góða starfsfólks,“ sagði Alma D. Möller, heilbrigðisráðherra, í dag þegar fyrsta skóflustunga var tekin að 13.000 fermetra nýbyggingu við Sjúkrahúsið á Akureyri.

„Það er ánægjulegt að vera hér í dag við Sjúkrahúsið á Akureyri sem gegnir lykilhlutverki í íslensku heilbrigðiskerfi sem annað tveggja sérgreinasjúkrahúsa landsins og mikilvægur hlekkur í almannavörnum og heilbrigðisviðbúnaði. Hér er veitt fjölbreytt og sérhæfð þjónusta, auk þess sem sjúkrahúsið sinnir kennslu, rannsóknum og læknisfræðilegri þjónustu við sjúkraflug,“ sagði ráðherra.

Klár í slaginn! Alma Möller bíður spennt eftir að taka fyrstu skóflustungu í dag.

Alma segir að ný legudeildabygging muni gjörbreyta aðstæðum sjúklinga „sem við núverandi aðstæður liggja á fjölbýlum og það er skortur á einangrunarherbergjum. Sérstaklega er ánægjulegt að geðþjónusta fái nútímalega aðstöðu, enda er mikilvægt að geðheilbrigðisþjónusta njóti sömu uppbyggingar og önnur heilbrigðisþjónusta.“

Í nýbyggingunni verða 36 stofur skurðlækningadeildar, einnig 36 stofur lyflækningadeildar og 12 sjúkrastofur geðdeildar, auk tveggja öryggiseininga fyrir geðgjörgæslu. „Þetta eru því samtals 84 legurými ásamt stoðrýmum og dag- og göngudeild geðdeildar. Það er umtalsverð aukning frá núverandi stöðu sem byggir á margvíslegum forsendum og undirstrikar mikilvægi þess að horfa til framtíðar við uppbyggingu innviða. Þá liggur fyrir að ráðast þurfi í endurgerð á um 1.300 fermetrum vegna tengingar við nýbyggingu,“ sagði ráðherra.


Alma nefndi að verkefnið ætti sér langan aðdraganda og byggði á frumathugun vinnuhóps sem var skipaður árið 2014 og uppfærslu þeirrar vinnu 2021. „Það var svo gæfuspor að fela félaginu Nýr Landspítali ohf. sem alltaf er nefnt NLSH að halda utan um hönnun og yfirstjórn verklegra framkvæmda. Það að byggja sjúkrahús eru engin geimvísindi, það er miklu flóknara en svo – en hjá NLSH hefur myndast mikil þekking á verklegum framkvæmdum á sviði sérhæfðrar sjúkrahúsþjónustu, bæði hið flókna Hringbrautarverkefni og stækkun Grensáss.“


„Dagurinn markar nýjan kafla“

Alma tók þannig til orða að ekki væri aðeins verið að byggja hús: „Við erum að fjárfesta í öflugri heilbrigðisþjónustu, auknu öryggi sjúklinga og betri starfsaðstöðu fyrir komandi kynslóðir heilbrigðisstarfsfólks. Dagurinn markar nýjan kafla; styrkingu Sjúkrahússins á Akureyri, draum sem er að rætast, stórhug sem hefur birst og hljómað um árabil. Hér mun rísa bygging sem verður hluti af traustum samfélagssáttmála um heilbrigðisþjónustu í fremstu röð fyrir okkur öll,“ sagði Alma

Hún sagði uppbyggingu heilbrigðisþjónustu um allt land eitt af forgangsmálum núverandi ríkisstjórnar „og dagurinn í dag markar enn ein tímamót í heildaruppbyggingu sjúkrastofnana,“ sagði ráðherra. „Við staðfestum hér að hugur fylgir máli og það er mér sem ráðherra heilbrigðismála sérstök ánægja að fylgja þessu verkefni eftir en Akureyri er mér kær margra hluta vegna, til dæmis fagnaði ég 45 ára stúdentsafmæli frá Menntaskólanum á Akureyri í vikunni.“