Fara í efni
Þór/KA

Enn til miðar – Hvar áttu að ganga inn?

Enn er til eitthvað af miðum á leik KA og Þórs í kvöld í Bestu deildinni, á nýjum gervigrasvelli KA, bæði í stæði þar sem KA-menn verða vestan við völlinn og aftan við syðra markið þar sem stuðningsmenn Þórs standa. Uppselt er í áhorfendastúkuna, sem nú verður notuð í fyrsta skipti en hún rúmar tæplega 1000 manns.

Flautað verður til leiks klukkan 19.15 og áhorfendum skulu ganga inn á mismunandi stöðum, eftir því hvar þeir eiga miða, til að allt gangi fljótt og vel fyrir sig. Sjá myndina hér fyrir neðan.

STÚKUSÆTI – Þeir sem eiga miða í stúku ganga frá bílastæðinu við KA-heimilið og koma norðan megin við stúkuna.

KA-STÆÐI VESTAN VALLARINS – Hluti stuðningsmanna KA stendur vestan við völlinn. Þeir ganga inn um hlið í norðvesturhorni svæðisins, rétt við verslun Nettó.

ÞÓRSARAR – Stuðningsmenn Þórs verða í stæðum sunnan við völlinn. Þeir eiga að ganga inn á svæðið frá Lundarskóla eins og rauða örin sýnir. 


UPPHITUN STUÐNINGSMANNA KA

Íþróttasalur KA verður opnaður kl. 17.15 fyrir upphitun stuðningsmanna. Þar verður veitingar til sölu, svo og ýmis KA-varningur. Sjá auglýsingu frá KA hér að neðan. 


UPPHITUN STUÐNINGSMANNA ÞÓRS

Félagsheimilið Hamar verður opnað fyrir upphitun stuðningsmanna klukkan 17.00. Þar verða seldar veitingar, ókeypis rútuferð verður í boði upp á KA-völl og þeir sem ekki eiga miða á leikinn geta horft á útsendingu af KA-vellinum í Hamri. Sjá auglýsingu frá Þór hér að neðan.