Fara í efni
Þór

Þór á heimavelli í dag en KA í Reykjavík

KA leikur úti gegn KR í dag, en Þór heima gegn Stjörnunni. Til vinstri er KA-maðurinn Jeppe Pedersen en Þórsarinn Einar Freyr Halldórsson á myndinni til hægri. Myndir: Ármann Hinrik.

Akureyrarliðin í Bestu deild karla í knattspyrnu eiga bæði leik í dag í 9. umferð, Þór á heimavelli, en KA á útivelli.

Þór tekur á móti Stjörnunni, en þessi lið eru í 9. og 10. sæti deildarinnar að loknum átta umferðum. Stjarnan er með sjö stig í 9. sætinu, stigi meira en Þór. Stjarnan hefur reyndar leikið einum leik meira þar sem leik liðsins gegn Víkingi í 14. umferð mótsins var flýtt vegna þátttöku Víkings í Evrópukeppni, og var spilaður núna í liðinni viku.

  • Besta deild karla í knattspyrnu
    9. umferð
    Þórsvöllur (VÍS völlurinn – gervigras á Ásnum), kl. 17
    Þór - Stjarnan

Bæði lið töpuðu síðasta leik sínum 0-1. Stjarnan tapaði gegn Fram á heimavelli, en Þór beið ósigur fyrir Keflvíkingum á útivelli. Stjarnan hefur náð einu stigi úr síðustu fimm leikjum sínum, en Þór hefur tapað fimm leikjum í röð.

- - -

KA sækir KR heim í 9. umferð Bestu deildar karla í dag. KR-ingar unnu fyrstu sex leiki sína í deildinni og eftir jafntefli og tap vann liðið Val í síðasta leik. Sá leikur er reyndar úr 16. umferð mótsins, en var flýtt vegna þátttöku liða í Evrópukeppni. KR er í 2. sæti deildarinnar með 22 stig að loknum níu leikjum. KA er í 7. sætinu með tíu stig úr átta leikjum.

Eftir þrjá sigurleiki í röð tapaði KA fyrir Val á heimavelli í síðustu umferð, 0-1. Síðasti leikur KR var einnig gegn Val, en þar höfðu Vesturbæingar 3-1 sigur.

  • Besta deild karla í knattspyrnu
    9. umferð
    Meistaravellir kl. 17
    KR - KA

KA og KR mættust þrisvar í Bestu deildinni í fyrra, gerðu 2-2 jafntefli í fyrstu umferðinni á Akureyri, en KA vann 2-1 á Meistaravöllum í júlí og aftur í neðri hluta deildarinnar í september, 4-2.