Fara í efni
Snjókross

Kortavelta um Versló 68% meiri en venjulega

Tónlistarmaðurinn Páll Óskar Hjálmtýsson steig síðastur á svið á Sparitónleikum Einnar með öllu á Akureyrarvelli á lokakvöldi hátíðarinnar um verslunarmannahelgina. Hér er hann á sviðinu - og um 20 þúsund talin hafa hlýtt á hann. Mynd: Hilmar Friðjónsson

Kortavelta á Akureyri um verslunarmannahelgina var 68% meiri en um venjulega helgi í júlí og innlendar kortafærslur voru 95% fleiri en venjulega. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fjártækni- og greiðsluþjónustufyrirtækinu Teya. 

Með kortaveltu er átt við heildarupphæð þeirra viðskipta sem greitt er fyrir með debet- eða kredikortum.

Teya þjónustar stóran hluta verslunar og þjónustu á Akureyri að því er segir í tilkynningunni og geti þar af leiðandi „séð bæinn frá óvenjulegu sjónarhorni: í gegnum kortaveltu.“ Því liggi beinast við að kafa í gögnin „og sjá hver efnahagsleg áhrif voru raunverulega.“

Þess er þó ekki getið í tilkynningu fyrirtækisins hve mikil veltan var; um hve miklar fjárhæðir er að ræða.

10% aukning í innlendum kortafærslum

Ýmislegt fróðlegt og skemmtilegt kemur fram í tilkynningunni frá Teya. Hér eru ýmsir punktar:

  • Kortin segja sögur af fólki. Fjöldi „nýrra“ korta í bænum – korta sem sem ekki höfðu sést á Akureyri síðustu átta vikurnar á undan – jókst um 91% miðað við venjulega helgi.
  • Hvert kort var að jafnaði notað 2,9 sinnum um verslunarmannahelgina en er notað 1,9 sinnum á venjulegum degi.
  • Þá jókst velta íslenskra korta í bænum: á venjulegri helgi um hásumar er um þriðjungur greiðslukorta sem eru notuð á Akureyri erlend, en um verslunarmannahelgina voru þau fjórðungur. Hlutur innlendra kortafærslna fór úr 77% í 87%.

Arnar Sveinn Geirsson, forstöðumaður viðskiptaupplifunar hjá Teya, segir gögnin vera til marks um vaxandi vinsældir Akureyrar um verslunarmannahelgina: „Það er áhugavert að sjá hvað Akureyrarbær sækir í sig veðrið, en bærinn virðist vera orðinn hjartað í landinu þessa helgi. Það er gaman að rýna í gögnin eftir stóra ferðahelgi sem þessa, og enn skemmtilegra að deila þeim. Við hjá Teya erum gríðarlega stolt af því hvað okkar fyrirtæki skipa stóran sess hjá smásölu- og þjónustuaðilum víðs vegar um landið,“ er haft eftir Arnari Sveini í tilkynningunni.

Sjöfaldur vöxtur á við borgina

„Þessa sömu helgi var Innipúkinn haldinn í Reykjavík þar sem innlendar kortafærslur hjá söluaðilum Teya í höfuðborginni jukust um 14% á meðan Akureyri nærri tvöfaldaðist – nærri sjöfaldur vöxtur á við höfuðborgina. Hvernig sem á það er litið var þetta stærsta verslunarmannahelgi Akureyrar sem við getum séð í okkar gögnum frá upphafi,“ segir í tilkynningu fyrirtækisins.

Mest verslað milli átta og níu um kvöldið

Til að setja hlutina í sögulegt samhengi bar Teyja saman gögn frá nýliðinni verslunarmannahelgi við tölur frá fyrri árum:

  • 10 annasömustu klukkustundir sem mælst hafa á Akureyri í innlendri kortaveltu í gögnum Teya eru allar frá þessari einu helgi.
  • Toppnum var náð á laugardagskvöldið milli klukkan átta og níu þar sem um 2,5 sinnum fleiri færslur fóru í gegnum kerfið en á besta klukkutímanum fram að verslunarmannahelgi.
  • Besta klukkustund hátíðarinnar í fyrra – sem átti metið þar til nú – kemst ekki lengur á topp tíu listann.

 

Með þessari mynd segir Teya: „Hitakortið sýnir takt hátíðarinnar vel. Morgnarnir voru rólegir , kvöldin kraftmikil og nætur sem eru vanalega nokkuð rólegar urðu annasamar. Frá miðnætti til fjögur að nóttu til fóru sexfalt fleiri færslur í gegn hverja nótt hátíðarinnar en um venjulega helgi.“

Bjór, pylsa og kaffi vinsælast

Hvað var svo aðallega keypt? Því svarar Teya.

Veitingastaðir, kaffihús, barir og skyndibitastaðir báru veltuna uppi en hún jókst um 72% hjá þessum aðilum.

Meðalfærslan lækkaði á sama tíma um 13%, sem sýnir okkur að verslunarmannahelgin „snýst um margar litlar færslur – bjór hér og bjór þar, pulsa og kók að kvöldi loknu og kaffibolli þess á milli.“


  • Smellið hér til að sjá tilkynningu Teya í heild á vef fyrirtækisins.