Fara í efni
Skógarböðin

Óskað eftir „sýnilegum foreldrum“ um versló

Frá hátíðinni um verslunarmannahelgina 2024. Mynd: Hilmar Friðjónsson

Það styttist í verslunarmannahelgina og til að tryggja það að hún gangi sem allra best er nú leitað að foreldrum ungmenna í grunn- eða framhaldsskóla á Akureyri sem vilja standa á hliðarlínunni í gulum vestum í miðbæ Akureyrar. 

Búið er að setja upp skráningarsíðu fyrir foreldra sem vilja leggja sitt að mörkum til að skapa örugga og fjölskylduvæna verslunarmannahelgi, en stefnt er að því að sýnilegir foreldrar gangi um tónleikasvæðið á Akureyrarvelli og um miðbæ Akureyrar frá kl. 18 til miðnættis um verslunarmannahelgina.

Sjálfboðaliðastarf á Einni með öllu

Að baki „Sýnilegum foreldrum um versló“ standa foreldrar sem vilja styðja við fjölskylduvænt viðburðahald á Akureyri. Eina skilyrðið fyrir þátttöku er að vera foreldri ungmennis í grunn- eða framhaldsskóla á Akureyri  og vera án áfengis/vímuefna á meðan vaktin er tekin í  gula vestinu. Um sjálfboðaliðastarf er að ræða og því ekki greitt fyrir vaktirnar.  Foreldrar sem bjóða sig fram klæðast merktum vestum í eigu Einnar með öllu og skuldbinda sig til þess að ganga um, vera sýnileg, brosmild, spjalla við krakka sem það vilja og láta viðbragðsaðila vita ef krakkar eru í neyð einhvers staðar eða ef hættulegar aðstæður skapast. 

Nánari upplýsingar og skráning á vaktir er hér