Fara í efni
Skógarböðin

Gjörðabókin fannst eftir flugslysið í Héðinsfirði

SÖFNIN OKKAR – 138

Frá Héraðsskjalasafninu á Akureyri_ _ _

Akureyri.net heldur áfram að opna dyr safnanna í bænum lesendum til fróðleiks og skemmtunar. Það er gert vikulega, á fimmtudögum.


Kvenskátafélag var fyrst stofnað á Akureyri 2. apríl 1923 í bíóhúsinu á Oddeyri. Félagið hlaut nafnið Valkyrjan.

Guðríður, stundum skrifuð Jónsdóttir, stundum Jóhannesson og stundum Norðfjörð, hafði veg og vanda að stofnun félagsins og oftlega sögð stofnandi þess. Um undirbúninginn segir m.a. í stofnfundargerðinni:

Frú Guðríður Norðfjörð las upp lög fyrir fjelag þetta, sömuleiðis próf þau er áskilin eru að meðlimir þess ynni af hendi og skýrði hún ennfremur frá tilgangi þess. Lög þessi kvað hún aðallega sniðin eftir lögum danskra kvennskáta, er hún hefir fengið hjá fröken Cand. Phil. Gertrud Nielsen í Kaupmannahöfn, foringja kvennskáta þar, og sumpart eftir lögum drengja-skáta hjer á Akureyri, er foringi þeirra, hr. Gunnar Guðlaugsson hefir látið í tje.


Stofnfélagar voru, auk Guðríðar, 19 stúlkur á aldrinum 11 til 16 ára og var Guðríður kosin formaður og gjaldkeri félagsins.

Fyrsta fundargerðabók félagsins er skjalið frá okkur á Héraðsskjalasafninu að þessu sinni. Bókin hefst á stofnfundinum og síðasta fundargerðin er dagsett 31. janúar en ártalinu 1924 virðist hafa verið bætt við síðar. Félagið starfaði stutt en enginn virðist vita nákvæmlega hve lengi.

Ein af stúlkunum 19 sem voru á stofnfundinum 1923 gat aldrei gleymt skátalífinu og glataði ekki trúnni á þroskandi og jákvæði áhrif skátastarfs. Þessi stúlka var Brynja Hlíðar og stóð hún að endurreisn félagsins 20. júní 1932. Brynja var félagsforingi Valkyrjunnar frá 1932 til dauðadags, að undanskildum nokkrum árum. Brynja var ein þeirra sem létust í flugslysinu í Héðinsfirði 29. maí 1947.


Nokkuð hefur verið fjallað um slysið í Héðinsfirði enda það mannskæðasta sem orðið hefur á Íslandi. Allir sem voru um borð, 25 manns, létust. Aðstæður á slysstað voru erfiðar en flak vélarinnar fannst í hlíðum Hestfjalls sem er bratt og klettótt. Höfðu vélarhlutar og lík dreifst en flest bendir til þess að flugvélin hafi flogið beint á fjallið og sprungið og brunnið samstundis. Allt brann sem brunnið gat.

Og þó, því um áðurnefnda fundargerðabók segir í athugasemdum í gagnaskrá Héraðsskjalasafnsins:

33,2 x 21,5 cm ib., 78 tölus. bls., 13 skrifaðar.

Bók þessi fannst nokkru eftir flugslysið í Hestfjalli í Héðinsfirði 29. maí 1947, hún hafði verið í farangri Brynju Hlíðar sem þar fórst ásamt mörgum öðrum.

Bókin ber vitni þess að hafa fengið óblíða meðferð; kápan hefur bögglast og á blaðsíðum bókarinnar má sjá vatnsskemmdir og leifar af sóti.