Fara í efni
Skógarböðin

Akureyrarmótið: Tjaldar, ernir og aðrir fuglar

Við Jaðarsvöll er fjölbreytt fuglalíf. Meðal annars hafa tjaldapör hafa gert sig heimakomin þar um langt árabil og kippa sér lítið upp við umferð kylfinga á vellinum. Sennilega vita þeir sem er að kylfingarnar eru á höttunum eftir annars konar fuglum. Mynd: Skapti Hallgrímsson.

Velheppnuðu Akureyrarmóti í golfi sem hófst sl. miðvikudag lauk seint á laugardaginn. Um 20% fleiri þátttakendur voru í mótinu í ár en árið 2025; alls voru 178 keppendur skráðir til leiks í mismunandi forgjafar- og aldursflokkum, sem léku ýmist í þrjá eða fjóra daga (54 eða 72 holur), og fylgdist akureyri.net vel með gangi mála alla keppnisdagana.

Og þó að úrslit mótsins og sigurvegarar flokkanna séu auðvitað það sem stendur upp úr að keppni lokinni, er líka gaman – að minnsta kosti fyrir áhugafólk um golf – að rýna í ýmsar aðrar tölulegar staðreyndir úr mótinu.

  • Keppendur í meistaramótinu voru á mjög breiðu getustigi, allt frá byrjendum til afreksfólks. Meðalforgjöf kylfinganna 178 var 15,4. Lægsta skráða forgjöfin var +2,2 og sú hæsta 49,5 en upphafsforgjöf allra kylfinga sem byrja í sportinu er 54.
  • Aðeins voru leiknir þrír hringir á mótinu undir pari en par Jaðarsvallar er 71 högg. Það gerðu efstu menn meistaraflokks karla á síðustu tveimur keppnisdögunum. Akureyrarmeistarinn Tumi Hrafn Kúld lék á 67 höggum á 3. keppnisdegi og Hafsteinn Thor Guðmundsson á 69 höggum á lokadeginum, þegar hann tryggði sér silfrið. Hinn 13 ára Kristófer Áki Aðalsteinsson skilaði þó inn besta skori mótsins þegar hann lék á 66 höggum á fyrsta keppnisdegi í flokki 14 ára og yngri.
  • Hafsteinn Thor var auk þess annar tveggja kylfinga í meistaraflokki karla sem náðu að leika Jaðarsvöll á pari, eða 71 höggi. Hann og fráfarandi Akureyrarmeistari, Víðir Steinar Tómasson, léku báðir á 71 höggi á þriðja keppnisdegi. Auk þeirra lék Kristófer Áki Aðalsteinsson á 71 höggi á þriðja og síðasta keppnisdegi í flokki 14 ára og yngri. Allir aðrir hringir í mótinu voru spilaðir yfir pari.

Andrea Ýr Ásmundsdóttir fékk flesta fugla allra kylfinga í mótinu, 15 stykki. Þeir Tumi Hrafn Kúld og Hafsteinn Thor Guðmundsson fengu 14 fugla hvor. Myndir: Skapti Hallgrímsson

Valur Snær fékk tvisvar örn og Andrea Ýr flesta fugla

  • Það er töluvert afrek að leika golfholu á tveimur höggum minna en par hennar segir til um. Á tungumáli kylfinga heitir það að fá örn - og þrír kylfingar náðu því í mótinu. Einn þeirra afrekaði það meira að segja tvívegis! Valur Snær Guðmundsson í meistaraflokki karla fékk örn á 2. holu á þriðja keppnisdegi og endurtók afrekið á 15. holu daginn eftir. Heiðar Kató Finnsson fékk líka örn á 15. brautinni en það var á fyrsta keppnisdegi. Heiðar Kató þurfti síðan að draga sig úr leik og spilaði bara fyrsta daginn og aldrei að vita nema hann hefði náð fleiri örnum ef hann hefði klárað mótið. Auk þeirra fékk Gunnar Aðalgeir Arason í 1. flokki karla örn á 17. brautinni í lokadegi mótsins, þegar hann var í hörkueinvígi um sigur í flokknum. Örninn sá dugði reyndar ekki til og Gunnar Aðalgeir þurfti að sætti sig við annað sætið. Allar þessar holur eru par 5.
  • Og að leika holu á einu höggi undir pari heitir að fá fugl. Flesta fugla í mótinu fékk Andrea Ýr Ásmundsdóttir í meistaraflokki kvenna - fimmtán stykki. Næstir voru efstu menn meistaraflokks karla,  Tumi Hrafn Kúld og Hafsteinn Thor Guðmundsson með 14 fugla hvor. Alls fengu kylfingarnir í mótinu 403 fugla samanlagt, sem er aukning um næstum 100 fugla frá í fyrra!
  • Víðir Steinar Tómasson fékk flest pör, líkt og í fyrra - 44. Patrik Róbertsson kom þar á eftir með 43 pör og Patrekur Máni Ævarsson fékk 42 pör. Allir eru þeir í meistaraflokki karla.
  • Meðalskorið á hring í mótinu var 92,25 högg eða 21,25 högg yfir pari vallarins.
  • Fyrri og seinni níu holur vallarins virtust álíka krefjandi en þó var skorið á fyrri 9 örlítið hærra en á seinni 9. Fyrri 9 holurnar voru leiknar að meðaltali 11 höggum yfir pari og seinni 9 á 10,25 höggum yfir pari.
  • Sú braut sem reyndist kylfingum erfiðust á þessu móti var sú þrettánda. Enda er 13 yfirleitt engin happatala! Meðalskorið á þessa par 4 braut var 5,69 högg. Næsterfiðust var 9. brautin með meðalskor upp á 5,6 högg og þriðja erfiðust var önnur brautin en meðalskorið á þessa par 5 braut var 6,44 högg. Enda var þessi braut leikin í mótvindi flesta keppnisdagana.
  • Kylfingarnir náðu bestum árangri á 10. braut, sem er fremur þægileg par 4 hola. Meðalskorið þar var 4,74 högg. Næstauðveldust var 4. brautin, sem er par 3. Hún var leikin á 3,79 höggum að meðaltali og lokaholan, hin frábæra par 3 18. braut var þriðja auðveldust. Skorið á henni var að meðaltali 3,98 högg.


Tjaldurinn lætur sér ekkert bregða þótt Akureyrarmót sé í fullum gangi á Jaðarsvelli. Fæðuöflun gengur fyrir. Mynd: Skapti Hallgrímsson

  • Að 2. brautin skyldi hafa verið þriðja erfiðasta brautin skrifast líklega á veðuraðstæður, því oftast ná kylfingar ágætu skori á henni. Á Akureyrarmótinu 2025 var hún einmitt sú braut sem flestir fuglar komu á en í ár voru átta brautir sem gáfu fleiri fugla en 2. brautin.
  • Að þessu sinni fengu kylfingarnir langflesta fugla á 15. brautinni en þar komu 55 fuglar – auk arnanna tveggja sem áður var getið. Næstar komu 3. braut og 17. braut með 38 fugla og 10. brautin gaf 35 fugla.
  • Hins vegar var langsamlega sjaldgæfast að fá fugl á hinni erfiðu 13. braut en einungis 3 fuglar litu dagsins ljós þar yfir keppnisdagana fjóra. Næstar á eftir voru par 3 brautirnar 8. braut og 11. braut með 6 fugla hvor.

Tölur þessar eru fengnar með því að rýna í niðurstöður mótsins á þessari síðu og birtar með fyrirvara um að búið hafi verið að færa inn öll skor. Og þó að 178 kylfingar hafi lagt af stað í mótið þá voru aðeins færri sem luku því en nokkrir keppendur heltust úr lestinni af ýmsum orsökum.