Fara í efni
Skipulagsmál

Brýtur blað með nýrri bókaútgáfu

Mannkennd er fyrsta og eina íslenska bókaútgáfan sem sérhæfir sig í hágæða barnabókum um fötlunarfjölbreytileika í samstarfi við hagsmunasamtök á sviði fötlunar. Bókunum fylgir jafnframt fræðsla fyrir kennara og starfsfólk skóla og leikskóla.


  • Mannkend er eitt af sjö nýsköpunarverkefnum sem DriftEA valdi í svokallaðan Hlunn og fá þau verkefni heildstæða aðstöðu, ráðgjöf og þjálfara hjá Drift EA. Auk þessa voru fjögur önnur öflug samfélagsleg verkefni valin í Drift EA sem fá ráðgjöf og aðstöðu.
  • Akureyri.net mun kynna umrædd verkefni á næstunni. Þegar hefur verið fjallað um Unni Verkbókhald, en frumkvöðlarnir á bak við það kalla Unni „besta vin iðnaðarmannsins“, Orkey á Akureyri, sem framleiðir lífdísil úr íslenskri úrgangsolíu, og PTassistance sem hefur þróað stafræna lausn sem ætlað er að einfalda samskipti milli sjúkraþjálfara og skjólstæðinga og styðja við árangursríka endurhæfingu.

  • DriftEA er miðstöð frumkvöðla og nýsköpunar sem tók til starfa á Akureyri á síðasta ári.
  • Síðasta sumar fengu 13 verkefni inngöngu í nýsköpunarhraðal sem nefnist Slipptaka hjá DriftEA. Næsta skrefið að Slipptöku lokinni er Hlunnurinn incubator sem er að sænskri fyrirmynd en DriftEA er í samstarfi við sænska frumkvöðlasetrið Sting.

Markmiðið er að skapa fjölbreytta bókaflóru sem fagnar fjölbreytileikanum og rýfur staðalmyndir um fatlaða. „Það er mikilvægt að öll börn geti speglað sig í sögupersónum bóka, því það hefur áhrif á sjálfsmynd þeirra,“ segir Ingibjörg Guðlaug Jónsdóttir, stofnandi Mannkenndar. Að sögn Ingibjargar er jafnframt mikilvægt að ófötluð börn fái innsýn í reynsluheim fatlaðra barna og læri að skilja hann.

Hugmyndin að Mannkennd kviknaði þegar dóttir Ingibjargar fór að spyrja um bækur um krakka með einhverfu og flogaveiki eins og hún sjálf. Ingibjörg segist hafa fengið áfall þegar hún fór að leita að slíkum bókum á íslensku. „Ég fann mjög fáar bækur og í misjöfnum gæðum,“ segir hún. Hún bendir á að á sama tíma hafi verið til fjöldi erlendra bóka um efnið og þá hafi hún ákveðið að taka málið í eigin hendur og gera verkefnið að sínu aðalstarfi svo fleiri börn gætu notið góðs af.

Ingibjörg Guðlaug Jónsdóttir, stofnandi Mannkenndar: „Mér fannst skipta miklu máli að efnið endurspegli reynslu, þarfir og sjónarmið einhverfra barna og fjölskyldna þeirra á vandaðan og trúverðugan hátt.“

„Það er mikilvægt að öll börn geti speglað sig í sögupersónum bóka þar sem það hefur áhrif á sjálfsmynd þeirra og að sama skapi er líka mikilvægt að ófötluð börn fái innsýn inn í reynsluheim fatlaðra barna,“segir Ingibjörg. „Útgáfa barnabóka fyrir fötluð börn eflir fjölbreytta barnamenningu þar sem slíkar bækur hafa hingað til verið af skornum skammti. Við þurfum að efla sýnileika og aðgengi barna, foreldra og skólasamfélagsins að bókum sem sýna líf og reynsluheim fatlaðra barna á uppbyggilegan og mannréttindamiðaðan hátt.“

Að sögn Ingibjargar bætir verkefnið við nýju og áður vannýttu sjónarhorni í íslenskar barnabókmenntir reynsluheimum fatlaðra barna sem hingað til hafi verið lítt sýnilegir.

„Markmiðið er að skapa fjölbreytta bókaflóru með áherslu á að fagna fjölbreytileikanum og rjúfa staðalmyndir um fatlaða, bjóða upp á persónur og sögur sem fötluð börn geta samsamað sig við og ófatlaðir lesendur geta skilið og lært af. “

Mikill stuðningur í frumkvöðlasamfélaginu

Ingibjörg segir þátttökuna í Slipptökunni hafa verið lykilskref í að móta hugmyndina og hrinda henni í framkvæmd. Að sögn hennar var það mikill heiður þegar Mannkennd var valið í Hlunninn.

„Ég hef fengið frábæra hvatningu, aðhald og stuðning frá starfsfólki Driftar og öðrum frumkvöðlum,“ segir hún og bætir við að samhugur og samvinna innan frumkvöðlasamfélagsins hafi gefið sér aukið sjálfstraust og drifkraft til að halda áfram.



Fyrsta bókin kemur út í haust

Spennandi tímar eru framundan hjá Mannkennd. Fyrirtækið hefur tryggt sér útgáfurétt á þýskri barnabók um einhverfu sem verður fyrsta bókin sem gefin verður út og kemur út næsta haust í samstarfi við Einhverfusamtökin.

Bókin heitir Lísa og Lio og fjallar um stúlku sem flytur í nýjan bæ og kynnist geimrefnum Lio. Saman takast þau á við nýjar aðstæður og óvissu. Í sögunni útskýrir Lísa hvernig samskipti geti tekið mikla orku og hvers vegna hún þurfi tíma til að hlaða sig eftir skóladaginn.

Höfundur bókarinnar er þýska teiknimyndasöguhöfundurinn Daniela Schreiter, sem er sjálf einhverf. Bókin hlaut hin virtu Max og Moritz verðlaun árið 2022, sem eru meðal þekktustu verðlauna í teiknimyndasöguheiminum.

Ingibjörg segir viðbrögðin við bókinni hafa verið afar jákvæð. Að sögn hennar var mikilvægt að vinna náið með Einhverfusamtökunum að verkefninu.

„Mér fannst skipta miklu máli að efnið endurspegli reynslu, þarfir og sjónarmið einhverfra barna og fjölskyldna þeirra á vandaðan og trúverðugan hátt,“ segir hún.

Hægt er að styrkja útgáfu bókarinnar á vefsíðu Mannkenndar - www.mannkennd.is/styrkja