Fara í efni
Risakýrin Edda

Þór/KA tekur á móti Val í kvöld

Erin Flurey í leik gegn Fram fyrr í mánuðinum. Hún er markahæst í liði Þórs/KA, hefur skorað sex mörk í deildinni í sumar. Mynd: Ármann Hinrik.

Þór/KA hefur fært sig ofar í töflunni í Bestu deild kvenna í knattspyrnu með tveimur sigrum í röð og þremur sigrum í síðustu fjórum leikjum, og fór upp í 6. sæti deildarinnar eftir síðasta leik, er með 18 stig þegar þremur umferðum er ólokið fyrir tvískiptingu deildarinnar. Í dag er komið að heimaleik gegn Val, sem situr í 9. sæti deildarinnar með 13 stig.

Fyrstu leikir 17. umferðarinnar fóru fram í gærkvöld. Grindavík/Njarðvík vann Fram örugglega, 4-0. Stjarnan og Breiðablik áttust við í Miðgarði, en þar mun Stjörnuliðið spila áfram þar sem framkvæmdir við að endurnýja gervigrasið á Stjörnuvellinum eru að hefjast. Stjarnan vann Breiðablik 2-0. Rétt er að taka fram til að fyrirbyggja rugling að 17. umferðin sem nú fer fram er þriðja síðasta umferðin fyrir tvískiptingu deildarinnar. Næst er það 18. umferðin, en þessum hluta deildarkeppninnar lýkur með 10. umferð mótsins sem átti upphaflega að spilast í lok júní, en var færð aftur fyrir mótið vegna þátttöku U19 landsliðsins í lokamóti EM í byrjun júní.

Fullt af dýrmætum stigum í boði

Fram undan er bæði hörð barátta við að forðast fall, sem og barátta um að halda sér á meðal efstu sex liða og spila þannig í efri hlutanum eftir tvískiptingu deildarinnar. Að loknum 15 leikjum og tveimur fyrstu leikjum 17. umferðarinnar er Grindavík/Njarðvík í 5. sæti með 22 stig að loknum 16 leikjum eftir öruggan sigur á Fram í fyrsta leik 17. umferðarinnar í gær, síðan Þór/KA í 6. sætinu með 18 stig, Þróttur næst, einnig með 18 stig en verri markamun en Þór/KA. Þá kemur Fram í 8. sætinu með 16 stig, Valur með 13 og Víkingur í botnsætinu með 11 stig.

Taflan getur því verið fljót að breytast í lokaumferðunum fyrir tvískiptingu og raunar ekki svo langt upp í 3. og 4. sætið heldur því þar eru núna Stjarnan í 3. sæti með 26 stig eftir 16 leiki og ÍBV með 24 stig eftir 15 leiki.

  • Besta deild kvenna í knattspyrnu, 17. umferð
    Þórsvöllur (VÍS-völlurinn, gervigras á ásnum) kl. 18
    Þór/KA - Valur

Fyrri leikur Þórs/KA og Vals fór fram að Hlíðarenda um miðjan júní og endaði með markalausu jafntefli. Segja má að sá leikur hafi að sumu leyti markað upphaf að betra gengi liðsins eftir afleita byrjun á Íslandsmótinu því í kjölfarið fylgdu sigrar og liðið hélt markinu hreinu nokkra leiki í röð.

Aðrir leikir sem Þór/KA á eftir fyrir tvískiptingu deildarinnar: Þróttur (ú), FH (ú).

Leikir 17. umferðar:

  • Grindavík/Njarðvík - Fram 3-0
  • Stjarnan - Breiðablik 2-0
  • ÍBV - Þróttur
  • FH - Víkingur
  • Þór/KA - Valur