Fara í efni
Norðurorka

Fótbolti heima og úti – hjólreiðar í Kjarnaskógi

Keppni í Bestu deildum kvenna og karla í knattspyrnu rúllar af stað að nýju og tvö af Akureyrarliðunum eiga leik um helgina. Þór/KA sækir Val heim á laugardag, en Þór tekur á móti ÍBV á sunnudag. Á sunnudag er einnig hjólreiðamót fyrir krakka í Kjarnaskógi. 

LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ - fótbolti

Þór/KA á enn eftir að ná sínum fyrsta sigri í Bestu deildinni þetta árið. Liðið sækir Val heim á laugardag, en bæði lið hafa átt betri daga en þá tæpa 50 daga sem liðnir eru frá því að mótið hófst. Valur er í 8. sætinu með sjö stig að loknum sjö umferðum, en Þór/KA í 10. sæti með tvö stig.

  • Besta deild kvenna í knattspyrnu, 8. umferð
    N1 völlurinn að Hlíðarenda kl. 16:15
    Valur - Þór/KA

Valur vann báðar viðureignir liðanna í fyrra, fyrst 3-0 á sínum heimavelli í apríl og 2-1 á Akureyri í ágúst.

SUNNUDAGUR 14. JÚNÍ - fótbolti, hjólreiðar

Það verða mikilvæg þrjú stig í boði þegar Þór tekur á móti ÍBV í 10. umferð Bestu deildar karla á sunnudag. Bæði lið eru nálægt botninum, ÍBV í 11. sæti með fimm stig og Þór sætinu ofar með stigi meira. Eftir sex töp í röð hafa Eyjamenn náð sér í fjögur stig í síðustu tveimur leikjum, en liðið vann sinn fyrsta sigur í mótinu í 9. umferðinni gegn Keflavík. Eftir sex stig í fyrstu þremur leikjunum hefur Þór hins vegar tapað sex leikjum í röð. 

  • Besta deild karla í knattspyrnu, 10. umferð
    Þórsvöllur (VÍS-völlurinn, gervigras sunnan við Bogann) kl. 17
    Þór - ÍBV

Eyjamenn leika undir stjórn Alexandars Linta, sem lék með Þór á árum áður.

- - -

Krónuhjólreiðamótið, samstarfsverkefni Hjólreiðafélags Akureyrar, Akureyrardætra og Krónunnar, fer fram í Kjarnaskógi sunnudaginn 14. júní. Mótið er ætlað öllum krökkum á aldrinum 2-12 ára. 
  • Krónuhjólreiðamótið
    Kjarnaskógur kl. 9-13.
Að auki verður boðið upp á sýningu BMX Brós kl. 11 við Kjarnakot.
 
Nánari upplýsingar um mótið má finna undir Facebook-viðburði HFA: Krónuhjólamót á Akureyri | Facebook