Fara í efni
Menntamál

Merkileg rimma ef Aron og Gylfi mætast

Þrír þessara kappa verða (vonandi) í eldlínunni um helgina; Gylfi Þór Sigurðsson og Aron Einar Gunnarsson, lengst til hægri, á VÍS-velli Þórs í dag, en Lionel Messi í úrslitaleik heimsmeistarakeppninar í New Jersey á morgun. Myndin er tekin eftir að pólski dómarinn Szymon Marciniak steig óvart ofan á rist Arons Einars í 1:1 jafnteflisleik þjóðann á HM í Rússlandi sumarið 2018. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Rétt rúmum tíu árum eftir hið einstaka ævintýri karlalandsliðs Íslands í fótbolta á Evrópumótinu í Frakklandi árið 2016 mætast tveir af höfuðpaurunum þaðan í fyrsta skipti í opinberum knattspyrnuleik í meistaraflokki á Íslandi.

Þór tekur á móti Víkingi á Þórsvellinum á Akureyri í dag klukkan 16 og Gylfi Þór Sigurðsson verður væntanlega í liði Víkings sem hefur farið með himinskautum, unnið þrettán leiki í röð í Bestu deildinni og sló fyrr í vikunni ungversku meistarana Györ út í fyrstu umferð undankeppni Meistaradeildarinnar. Gylfi hefur spilað geysilega vel og skorað sjö mörk í tólf leikjum í Bestu deildinni ásamt því að skora jöfnunarmarkið dýrmæta gegn Györ á þriðjudaginn.

Meðal andstæðinga hans verður Aron Einar Gunnarsson, sem í gær gekk til liðs við Þór á nýjan leik og spilar að óbreyttu í dag sinn fyrsta leik í efstu deild á Íslandi, 37 ára gamall.

Gylfi og Aron Einar glaðir í bragði eftir 1:0 sigur Íslands á Hollandi í Amsterdam 3. september 2015 í undankeppni Evrópumótsins í Frakklandi 2016. Eftir þann frækna sigur á bronsliði frá síðasta heimsmeistaramótinu voru Íslendingar nánast öruggir með sæti á EM; þeir þurftu eitt stig til viðbótar úr þremur leikjum. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Þeir Aron og Gylfi eru jafnaldrar, Gylfi verður 37 ára í haust, og væntanlega hafa þeir mæst einhvern tíma í yngri flokkunum þegar Aron lék með Þór en Gylfi með FH og Breiðabliki. Báðir yfirgáfu þeir Ísland á unga aldri án þess að spila í efstu deild, Gylfi var síðast í 3. flokki Breiðabliks árið 2005 áður en hann fór til Reading á Englandi og Aron náði að spila ellefu leiki með meistaraflokki Þórs í 1. deild árin 2005 og 2006 áður en hann gerðist leikmaður AZ Alkmaar í Hollandi.

Gylfi vann Aron fimm sinnum

Aron og Gylfi mættust fimm sinnum með félagsliðum sínum í ensku knattspyrnunni á árunum 2009 til 2019. Þar lágu leiðir þeirra fyrst saman þegar báðir léku í B-deildinni veturinn 2009-2010, Aron með Coventry og Gylfi með Reading. Báðir léku þeir báða leiki liðanna og Gylfi hafði betur með fullu húsi stiga því Reading vann í bæði skiptin, 3-1 á útivelli og 3-0 á heimavelli.

Næst mættust þeir félagar tímabilið 2013-2014 en þá var Aron búinn að vera leikmaður Cardiff frá 2011 og lið hans var nýliði í úrvalsdeildinni. Þangað var Gylfi kominn sem leikmaður Tottenham, frá og með sumrinu 2012, eftir millilendingar hjá Hoffenheim og Swansea. Þeir mættust á Cardiff City Stadium í september 2013, báðir í byrjunarliði, og Gylfi fagnaði 1-0 sigri eftir sigurmark frá Paulinho í uppbótartíma. Tottenham vann líka seinni leikinn í London í mars 2014, 1-0. Aron var sem fyrr í liði Cardiff en Gylfi missti af þeirri viðureign.

Umfjöllun Independent í lok febrúar 2019 þegar Gylfi gerði tvö mörk í 3:0 sigri Everton á Cardiff á heimavelli Arons og félaga. Aron lengst til vinstri á myndinni.

Þrjú mörk Gylfa fyrir Everton gegn Cardiff

Gylfi lék áfram í ensku úrvalsdeildinni með Tottenham og síðan Everton á meðan Aron lék nær eingöngu í B-deildinni með Cardiff. En velska liðið náði þó að leika meðal þeirra bestu eitt tímabil, veturinn 2018-19. Þar mættust íslensku landsliðsmennirnir í báðum leikjum Everton og Cardiff og óhætt er að segja að Gylfi hafi sett svip sinn á þá.

Hann skoraði sigurmarkið í fyrri leiknum á Goodison Park sem Everton vann, 1-0, í nóvember 2018 og skoraði síðan tvö af mörkum Everton þegar liðið vann seinni leikinn á Cardiff City Stadium, 3-0, í lok febrúar 2019.

Þeir Aron og Gylfi mættust því fimm sinnum með sínum ensku liðum og Gylfi var óumdeildur sigurvegari í þeim viðureignum með fimm sigra.

Samherjar frá sextán ára aldri

En Aron og Gylfi eiga miklu lengri sögu að baki sem samherjar með íslenskum landsliðum. Þeir spiluðu í fyrsta skipti saman í íslenskri landsliðstreyju 16 ára gamlir haustið 2005, í þremur leikjum í undankeppni Evrópumóts U17 ára landsliða sem fóru allir fram í Andorra. Þeir skoruðu meira að segja báðir í fyrsta leiknum, 6-0 sigri gegn Andorra, Gylfi skoraði í 2-2 jafntefli gegn Svíþjóð og Aron gerði mark Íslands í 4-1 ósigri gegn Tékklandi.

Á næstu þremur árum léku þeir saman í tólf leikjum með U19 ára landsliðinu og frá 2007 til 2011 voru þeir samherjar í sjö leikjum með 21-árs landsliðinu, tveimur þeim síðustu í lokakeppni EM í Danmörku sumarið 2011.

Landslið Íslands fyrir leikinn sögulega í Nice þar sem Englendingar voru lagðir að velli, 2:1, í 16 liða úrslitum Evrópumótsins sumarið 2016. Aron Einar fyrirliði lengst til hægri í fremri röð og Gylfi fyrir aftan hann. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Fyrsti A-landsleikurinn þeirra saman var gegn Noregi árið 2010 og þar má segja að ævintýri íslenska karlalandsliðsins hafi verið að hefjast en þá sögu þekkja allir íslenskir knattspyrnuunnendur. Aron og Gylfi hafa á síðustu sextán árum verið samherjar í 66 leikjum og hátindurinn á þeim eru að sjálfsögðu leikirnir átta í lokakeppni stórmóta, fimm á Evrópumótinu í Frakklandi 2016 þar sem þeir sigruðu Austurríki og England á eftirminnilegan hátt, og þrír á heimsmeistaramótinu í Rússlandi 2018 þar sem þeir tóku þátt í jafnteflinu fræga gegn Argentínu.

Hafa leikið saman í 88 landsleikjum

Aron og Gylfi hafa ekki leikið mikið með íslenska landsliðinu frá árinu 2020. Þeir náðu einum leik saman árið 2023, en spiluðu síðan aftur báðir með liðinu fyrr í sumar þegar Ísland mætti Haití og Argentínu í vináttulandsleikjum vestanhafs. Þegar þeir mættu Lionel Messi og samherjum hans í liði Argentínu í annað skipti á ferlinum léku þeir saman með íslensku landsliði í 88. skipti, þegar leikir í öllum aldursflokkum eru taldir með.

Svona lítur sameiginlegur landsliðsferill Arons og Gylfa út en þeir hafa leikið saman fyrir Íslands hönd í eftirtöldum landsleikjum:

  • 2005 - Gegn Andorra, Svíþjóð og Tékklandi með U17 (3).
  • 2006 - Gegn Belgíu, Slóvakíu, Póllandi, Póllandi, Færeyjum með U19 (5)
  • 2007 - Gegn Spáni, Noregi, Englandi, Belgíu með U19 (4)
  • 2007 - Gegn Þýskalandi og Belgíu með U21 (2)
  • 2008 - Gegn Noregi, Ísrael og Búlgaríu með U19 (3)
  • 2008 - Gegn Kýpur með U21 (1)
  • 2010 - Gegn Skotlandi og Skotlandi með U21 (2)
  • 2010 - Gegn Noregi og Danmörku með A (2)
  • 2011 - Gegn Hvíta-Rússlandi og Danmörku með U21 (2)
  • 2011 - Gegn Kýpur, Danmörku og Portúgal með A (3)
  • 2012 - Gegn Svartfjallalandi, Frakklandi, Svíþjóð, Færeyjum, Noregi, Kýpur og Albaníu með A (7)
  • 2013 - Gegn Slóveníu, Sviss, Albaníu, Kýpur, Noregi, Króatíu og Króatíu með A (7)
  • 2014 - Gegn Wales, Eistlandi, Tyrklandi, Lettlandi, Hollandi og Tékklandi með A (6)
  • 2015 - Gegn Kasakstan, Tékklandi, Hollandi, Kasakstan, Tyrklandi og Póllandi með A (6)
  • 2016 - Gegn Danmörku, Grikklandi, Noregi, Liechtenstein, Portúgal, Ungverjalandi, Austurríki, Englandi, Frakklandi, Úkraínu, Finnlandi og Króatíu með A (12)
  • 2017 - Gegn Kósovó, Króatíu, Finnlandi, Úkraínu, Tyrklandi, Kósovó og Katar með A (7)
  • 2018 - Gegn Argentínu, Nígeríu og Króatíu með A (3)
  • 2019 - Gegn Andorra, Frakklandi, Albaníu, Tyrklandi, Moldóvu og Albaníu með A (6)
  • 2020 - Gegn Rúmeníu, Danmörku, Ungverjalandi og Danmörku með A (4)
  • 2023 - Gegn Liechtenstein með A (1)
  • 2026 - Gegn Haití og Argentínu með A (2)

Sigurmarki Kolbeins Sigþórssonar (2:1) gegn Englandi í Nice 27. júní 2016 fagnað. Aron Einar og Gylfi koma aðvífandi lengst til vinstri. Mynd: Skapti Hallgrímsson 

Aron og Gylfi í tölum

Aron er næstleikjahæsti leikmaður karlalandsliðsins frá upphafi með 110 leiki og er aðeins þremur leikjum á eftir öðrum Akureyringi, Birki Bjarnasyni, en Aron á möguleika á að slá leikjamet hans í ár.

Gylfi er hins vegar í tíunda sæti yfir leikjahæstu landsliðsmenn Íslands með 86 leiki, en á möguleika á að komast upp í sjöunda sætið á þessu ári.

Gylfi er markahæsti landsliðsmaður Íslands með 28 mörk en hann bætti met sitt með marki gegn Haití í síðasta mánuði. Aron hefur hins vegar skorað fimm mörk fyrir íslenska landsliðið, þrjú þeirra í sama leiknum, gegn Liechtenstein fyrir nokkrum árum.

Aron hefur vinninginn í fjölda deildaleikja en hann hefur leikið 510 deildaleiki á ferlinum og er fjórði leikjahæsti Íslendingurinn á þeim vettvangi. Hann á möguleika á að jafna leikjamet Arnórs Guðjohnsens með því að spila alla þrettán leikina sem Þór á eftir í Bestu deildinni í ár.

Gylfi er ellefti leikjahæstur af íslenskum knattspyrnumönnum í deildakeppni með 476 leiki á ferlinum og gæti endað þetta tímabil í áttunda sætinu. Hann hefur skorað 123 mörk í þessum leikjum, þar af 67 í ensku úrvalsdeildinni þar sem hann er markahæstur Íslendinga, tólf mörkum á undan Eiði Smára Guðjohnsen.

Aron Einar Gunnarsson, til hægri, og Gyrðir Hrafn Guðbrandsson eftir að þeir skrifuðu undir samning við Þór í gær. Gyrðir kemur að láni frá KR til haustsins. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Verða þeir með í leiknum?

Allur þessi samanburður er birtur með fyrirvara um að báðir taki þátt í leiknum í dag, sem knattspyrnuáhugamenn vonast væntanlega allir eftir. Að sjálfsögðu gæti Sölvi Geir Ottesen þjálfari Víkings tekið upp á því að hvíla Gylfa, enda er mikið leikjaálag á Víkingum þessa dagana vegna Evrópuleikjanna, og þá gæti vissulega verið freistandi fyrir þjálfarann að gefa honum frí frá leik við neðsta lið Bestu deildarinnar.

Aron er að komast í gang á ný eftir sumarfrí, þetta yrði hans fyrsti leikur eftir að hann lék gegn Argentínu snemma í júní, en Sigurður Heiðar Höskuldsson þjálfari Þórs hefur tæplega efni á að stilla upp sínu liði án síns reyndasta leikmanns. Sigurður vill eflaust leita allra leiða til að loka fyrir markaflæðið. Mótherjar Þórs hafa skorað 41 mark hjá liðinu til þessa en eins og undirritaður sagði frá í grein á Fótbolta.net á dögunum hefur ekkert lið fengið eins mörg mörk á sig í fyrstu fjórtán leikjunum í deildinni í 33 ár, eða frá árinu 1993. Þá voru það einmitt Víkingar sem „gerðu betur!“

En það þarf ekki að draga í efa að þessir miklu keppnismenn vilja báðir taka þátt í leiknum í dag, og vilja eflaust óðir og uppvægir taka aðeins hvor á öðrum!