Fara í efni
MA – VMA

Sérhæfð þjónusta í ristilaðgerðum á SAk

Mynd: Þorgeir Baldursson

Á Sjúkrahúsinu á Akureyri (SAk) hefur á síðustu misserum verið byggð upp aukin sérhæfð þjónusta í aðgerðum á ristli. Þessi þróun þýðir að sjúklingar á Norðurlandi geta í auknum mæli fengið meðferð nær heimabyggð, í stað þess að þurfa að leita til Reykjavíkur með tilheyrandi raski fyrir þá og aðstandendur þeirra.

Kristín Jónsdóttir kviðarholsskurðlæknir.

Að því er fram kemur í frétt á vefsíðu SAk hafa tveir skurðlæknar við sjúkrahúsið, sem hafa sérþekkingu á neðri meltingarvegi, leitt þessa uppbyggingu samhliða almennum skurðlækningum sínum. „Starfsemin hefur vaxið jafnt og þétt, en nú er meðal annars farið að framkvæma valaðgerðir á ristli með kviðsjá, sem hefur talsverða kosti fyrir sjúklinga. Slíkar aðgerðir leiða oft til hraðari bata, minni verkja og styttri legutíma samanborið við opnar aðgerðir,“ segir Kristín Jónsdóttir kviðarholsskurðlæknir í fréttinni á vef SAk.

Margir þeirra sjúklinga sem fara í slíkar aðgerðir eru með krabbamein í ristli en einnig eru aðrar ástæður fyrir meðferðinni. Kristín segir að árangur hafi verið góður en frá áramótum hafa verið framkvæmdar fimm kviðsjáraðgerðir þar sem hluti ristils var fjarlægður.

Kristín segir ennfremur að mikil ánægja sé meðal sjúklinga að geta farið í aðgerð hér fyrir norðan, í stað þess að þurfa að fara til Reykjavíkur og bætir við að mikilvægt sé að auka vitund meðal heilbrigðisstarfsfólks um að þessi þjónusta standi nú til boða á Akureyri.