Fara í efni
Listasafnið á Akureyri

Þór/KA enn á botninum eftir fimmta tapið

Þriðja mark Þórs/KA, á 74. mínútu. Hulda Ósk Jónsdóttir átti fasta sendingu fyrir markið, boltinn fór í bakið á Ísfold Marý Sigtryggsdóttur, fyrrverandi leikmanns Þórs/KA, og í markið. Myndir: Ármann Hinrik

Víkingur fór með öll stigin suður um heiðar eftir 6:4 sigur á Þór/KA í köflóttum leik í dag á Þórsvelli (VÍS vellinum – gervigras á Ásnum). Eftir leikinn er Þór/KA ennþá í botnsæti efstu deildar kvenna, Bestu deildinni, og biðin eftir fyrsta sigrinum lengist enn.

Heimakonur voru slegnar út af laginu strax í upphafi leiks þegar gestirnir skoruðu fyrsta markið eftir aðeins 23 sekúndur. Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir fékk þá knöttinn vinstra megin í vítateignum og lagði hann með hnitmiðuðu bogaskoti yfir Allie í markinu og upp í fjærhornið. Upp úr miðjum hálfleiknum komu svo þrjú Víkingsmörk með stuttu millibili. Tvö þeirra gerði Freyja Stefánsdóttir eftir snöggar skyndisóknir, þar sem varnarmenn Þórs/KA voru ekki nægilega vel með á nótunum, og á milli þeirra marka skallaði Jasmín Erla Ingadóttir knöttinn í netið af stuttu færi eftir hornspyrnu. Ekki nema hálftími liðinn af leiknum, staðan orðin 4:0 og útlitið dökkt hjá heimaliðinu. Þær ógnuðu marki gestanna sáralítið en náðu þó að koma boltanum einu sinni í netið en markið var réttilega dæmt af vegna rangstöðu. Víkingur var mun betra liðið í fyrri hálfleik og ekki stóð steinn yfir steini hjá Þór/KA, hvar sem á var litið. 

Þriðja mark Þórs/KA, á 74. mínútu. Hulda Ósk Jónsdóttir fór illa með varnarmann Víkings og átti fasta sendingu fyrir markið, boltinn fór í bakið á Ísfold Marý Sigtryggsdóttur, fyrrverandi leikmanns Þórs/KA, og í netið. Myndir: Ármann Hinrik

Mun betri frammistaða Þórs/KA eftir hlé

Líklega hefur verið farið vandlega yfir málin í búningsklefa Þórs/KA í leikhléinu, því frammistaða liðsins var mun betri í seinni hálfleik. Fyrirliðinn Arna Sif Ásgrímsdóttir kom þeim á blað á 59. mínútu með marki af stuttu færi eftir hornspyrnu. En skyndisóknir Víkinga héldu áfram að vera hættulegar og strax eftir mark Örnu skoraði Dagný Rún Pétursdóttir fimmta mark gestanna úr teignum eftir eina slíka sókn. Fimm mínútum síðar kom sjötta markið og það var afar slysalegt. Jóhanna Elín Halldórsdóttir var stödd upp við endalínu, rétt utan vítateigs, og sendi fastan bolta fyrir markið. Allie í markinu misreiknaði sig og varði boltann eiginlega inn í markið. 

En þrátt fyrir að staðan væri svört lögðu leikmenn Þórs/KA síður en svo árar í bát. Hulda Ósk Jónsdóttir var atkvæðamikil á hægri kantinum og skapaði tvö mörk á skömmum tíma. Fyrst átti hún góða sendingu fyrir markið á 72. mínútu sem Karen María Sigurgeirsdóttir sneiddi laglega með höfðinu í stöng og inn og tveimur mínútum síðar komst Hulda inn í teiginn meðfram endalínu og sendi fasta sendingu inn í markteiginn. Boltinn fór í bakið á Ísfold Marý Sigtryggsdóttur, fyrrverandi leikmanns Þórs/KA, og í markið.

Fjórða og síðasta mark Þórs/KA í dag – og ein myndin er skorin þannig að hún er „veðurfrétt“ í leiðinni; grátt er í fjöllum eins og sjá má. Eftir horn barst boltinn út í vítateig á Emelíu Ósk Krüger sem skoraði. Myndir: Ármann Hinrik

Staðan orðin 6:3 og heimakonur voru ekki hættar. Á 87. mínútu fékk Þór/KA hornspyrnu og eftir atgang á markteig barst boltinn út í vítateiginn þar sem Emelía Ósk Krüger hamraði hann gegnum þvöguna og í markið. Þrátt fyrir ákafa baráttu allt til enda tókst Þór/KA ekki að minnka muninn meira en segja má að úrslitin hafi ekki orðið nándar nærri eins slæm og stefndi í á tímabili.

Miðað við gang leiksins má telja afar ólíklegt að einhver spámaður hefði getað sagt fyrir um það að Þór/KA myndi skora fjögur mörk í seinni hálfleik, rétt eins og Víkingur gerði í þeim fyrri. En það var nú samt það sem gerðist, seinni hálfleikurinn var mun betri hjá heimastúlkum og það má segja þeim til hróss að þær gáfust aldrei upp og héldu áfram að berjast allt til leiksloka. Ef þær halda áfram að byggja á góðu köflunum sem sáust í seinni hálfleik í dag er stutt í fyrsta sigurinn í deildinni. Tvö jafntefli og fimm ósigrar í fyrstu sjö umferðunum er versta byrjun Þórs/KA í efstu deild síðan árið 2001 en þá tapaði liðið fyrstu sjö leikjum sínum.

Leikskýrslan á vef KSÍ