Fara í efni
Knattspyrna

Réttstöðulyfta: Viktor bætti eigið Íslandsmet

KA-mennirnir á Íslandsmeistaramótinu. Frá vinstri: Harpa Rut Þórlaugsdóttir, Heiðrún Frímannsdóttir, Drífa Ríkarðsdóttir og Viktor Samúelsson. Mynd af vef KA.

Viktor Samúelsson úr KA bætti eigið Íslandsmet í -120 kg flokki í klassískri réttstöðulyftu um nýliðna helgi – lyfti 321 kg. Íslandsmeistaramótið í réttstöðulyftu, bæði með og án búnaðar, fór þá fram í Íþróttahöllinni á Akureyri og var í umsjón KA.

Viktor lyfti 280 kg í fyrstu tilraun, því næst 310 kg og loks 321 kg. Auk þess að verða Íslandsmeistari sigraði Viktor í heildarstigakeppni mótsins. „Hann virkaði einkar öruggur í sínum aðgerðum og til alls líklegur að bæta metið enn frekar á næstunni,“ segir á vef KA.

Fjórir KA-menn kepptu á mótinu og var árangur annarra en Viktors sem hér segir:

  • Drífa Ríkarðsdóttir varð lang stigahæsta kona mótsins. Drífa varð tvöfaldur Íslandsmeistari í -63 kg flokki enda eini keppandinn. Hún lyfti 180 kg í klassískri réttstöðulyftu en 155 kg með búnaði.

  • Munurinn á klassískum kraftlyftingum og búnaðarlyftingum, sem svo eru kallaðar, er sá að í þeim klassísku má ekki notast við neinn aukabúnað eins og bekkpressuboli eða stálbrækur. Hnévafningar sem hægt er að herða að eins og með frönskum rennilás eru einnig bannaðir. Aðeins má nota hnéhólka sem ekki er hægt að herða og vafninga fyrir úlnlið.

  • Heiðrún Frímannsdóttir keppti í -84 kg flokki, lyfti mest 115 kg og varð í fjórða sæti af fimm keppendum. Elsa Pálsdóttir úr Massa á Reykjanesi setti Íslandsmet þegar hún lyfti 172,5 kg og sigraði með miklum yfirburðum.
  • Harpa Rut Þórlaugsdóttir keppti í +84 kg flokki ásamt Huldu Sigurjónsdóttur úr Ármanni. Þær háðu harða keppni, lyftu báðar mest 135 kg en Hulda fór heim með gull og Harpa varð að gera sér silfrið að góðu, því ein lyfta hennar mistókst en allar þrjár voru gildar hjá Huldu. 

Umfjöllun um mótið á vef KA