Hlaupið til minningar um Sólveigu Huldu
Þær „skildu eftir sig meira ljós, meiri ást og meiri áhrif en orð fá lýst. Takk fyrir að hlaupa með okkur, styrkja málefnið eða minnast þeirra með okkur,“ segir meðal annars í kynningartexta um hlaupahóp sem tekur þátt í Reykjavíkurmaraþoninu. Þær eru nöfnurnar Sólveig Hulda Valgeirsdóttir og Sólveig Hulda Egilsdóttir. Amma og dótturdóttir sem báðar létust fyrr á þessu ári, með tæplega þriggja mánaða millibili. Sú eldri rúmlega fimmtug, sú yngri aðeins eins dags gömul. „Þótt sorgin sé djúp finnum við huggun í þeirri hugsun að þær séu saman,“ segir í kynningu á hlaupahópnum.
Huggun í sorginni og uppspretta góðverka
Reykjavíkurmaraþonið er uppspretta góðverka í gegnum vefinn hlaupastyrkur.is. Árlega geta þátttakendur í maraþoninu valið sér málefni og fólk heitið upphæð að eigin vali á hlaupara. Að þessu sinni er einn hlaupahópur sem snertir hjarta Akureyringa mögulega meira en aðrir.
Þegar þetta er ritað hafa 25 hlauparar valið Hollvinasamtök Sjúkrahússins á Akureyri sem styrkþega, en einn hlaupahópur sker sig þó úr, hópur sem hleypur til minningar um Sólveigu Huldu. Hópurinn setti sér markmið um að safna fimm milljónum króna og er nú þegar kominn fram úr því markmiði. Þegar þetta er ritað er upphæðin ríflega 6,5 milljónir króna.
Ólýsanleg áföll
Óhætt er að segja að fjölskylda Sólveigar Huldu hafi gengið í gegnum ólýsanlega sorg fyrr á árinu. Sólveig Hulda Valgeirsdóttir, ástrík og elskuð í starfi og leik, í starfi sínu á Sjúkrahúsinu á Akureyri, sem sjálfboðaliði hjá Skautafélagi Akureyrar og auðvitað og ekki síst innan fjölskyldunnar og meðal vina, féll skyndilega frá þann 22. febrúar, rétt rúmlega fimmtug að aldri.
Engan óraði þó fyrir því sem átti eftir að dynja á fjölskyldunni. Dóttir Sólveigar Huldu og Garðars Sigurðssonar tannlæknis, Kolbrún María, eignaðist stúlku um þremur mánuðum síðar, en hún og faðir stúlkunnar, Egill Rúnar Halldórsson, fengu þó ekki að njóta samvista með henni nema í einn dag. Litla Sólveig Hulda Egilsdóttir hvarf á fund ömmu sinnar og nöfnu þann 16. maí.
Þau Kolbrún María og Egill Rúnar lýstu þessari ólýsanlegu upplifun í einlægu og eftirminnilegu viðtali í Morgunblaðinu fyrir nokkrum vikum. Þau láta ekki þar við sitja heldur nýta þau sorgina til að láta gott af sér leiða. Þau stofnuðu hlaupahóp sem tekur þátt í Reykjavíkurmaraþoninu og er hlaupið í minningu Sólveigar Huldu. Velunnarar geta heitið á hópinn sem styrkir Hollvinasamtök Sjúkrahússins á Akureyri, en áheit fara fram á vefnum hlaupastyrkur.is.
Gengið, skokkað og hlaupið frá Skautahöllinni
Eins og áður hefur komið fram var Sólveig Hulda Valgeirsdóttir ötull sjálfboðaliði hjá íshokkídeild Skautafélags Akureyrar. Auk þeirra sem hlaupa í Reykjavíkurmaraþoninu til minningar um þær nöfnur verður samverustund og ganga á vegum Skautafélagsins á laugardag, sama dag og Reykjavíkurmaraþonið fer fram. Farinn verður um fjögurra kílómetra hringur frá Skautahöllinni, upp Naustaveginn og síðan að Sjúkrahúsinu á Akureyri þar sem Sólveig Hulda starfaði og aftur niður Spítalaveginn og inn að Skautahöllinni.
Á vef Skautafélagsins segir:
Við erum svo lánsöm að eiga sterkt og gott samfélag í Skautafélaginu okkar, fólk sem skautar, þjálfar, sýnir stuðning í verki, hlúir að mannauðnum og starfinu bæði hið ytra sem innra og svo fólk sem fær frábærar hugmyndir.
Á laugardaginn fer Reykjavíkurmaraþon fram í borginni og eru nokkur úr okkar hópi sem ætla hlaupa þar í minningu okkar ástkæru Sólveigar Huldu og nöfnu hennar litlu Sólveigar Huldu.
Mörg okkar hafa stutt málefnið en eiga ekki heimangengt til Reykjavíkur eða treysta sér ekki til að hlaupa en vildu gjarnan sýna samhug í verki.
Því var það einkar ánægjuleg og góð hugmynd sem barst til okkar, að koma saman við skautahöllina og ganga, skokka eða hlaupa; upp Naustaveginn, að sjúkrahúsinu, niður Spítalaveginn og suður Aðalstrætið aftur að höllinni.
Sýna stuðning með þeim hætti og minnast okkar bestu konu, höllin og SAK voru jú hennar vettvangur.
Það eru allir velkomnir með, ganga, skokka eða hlaupa, alla leið eða hluta, leiðin er rétt um 4 km.
Hittumst við höllina kl 10 og förum af stað kl 10:15.
Öll eru velkomin með okkur og næg bílastæði við höllina.
Sjáumst sem flest kl 10 laugardaginn 22. ágúst við skautahöllina 🧡
HLAUPAHÓPUR TIL MINNINGAR UM SÓLVEIGU HULDU
Á vefnum hlaupastyrkur.is er kynning á hlaupahópnum:
Þessi hópur er stofnaður til minningar um tvær einstakar Sólveigar Huldu sem kvöddu okkur alltof snemma. Sólveig Hulda, móðir, eiginkona, amma, vinkona og samstarfskona, lést skyndilega 22. febrúar 2026. Aðeins þremur mánuðum síðar fæddist litla dóttir okkar, Sólveig Hulda Egilsdóttir, þann 15. maí 2026 og fékk aðeins einn dag með okkur áður en hún lagði af stað í sína síðustu ferð. Þótt sorgin sé djúp finnum við huggun í þeirri hugsun að þær séu saman. Litla Sólveig Hulda okkar fékk að fara beint í fang ömmu sinnar, þar sem þær geta sungið, hlegið og passað hvor aðra þar.
Til að heiðra minningu þeirra höfum við stofnað þennan hlaupahóp og söfnum styrkjum í gegnum Reykjavíkurmaraþonið fyrir Hollvinasamtök SAk. Sólveig Hulda eldri starfaði á Sjúkrahúsinu á Akureyri og bar hag spítalans og fólksins þar fyrir brjósti. Hún studdi Hollvinasamtökin af heilum hug og því finnst okkur sérstaklega viðeigandi að láta söfnunina renna til þeirra. Með þessari söfnun viljum við láta eitthvað fallegt leiða af okkur í þessari ólýsanlegri sorg.
Við viljum heiðra minningu tveggja dýrmætra Sólveigar sem skildu eftir sig meira ljós, meiri ást og meiri áhrif en orð fá lýst. Takk fyrir að hlaupa með okkur, styrkja málefnið eða minnast þeirra með okkur. Hver stuðningur skiptir máli og hjálpar okkur að halda minningu þeirra á lofti.🧡
