Fara í efni
KA/Þór

Götuhjólreiðar, frjálsar, spyrna og bruni

Íþróttir dagsins eru á sömu nótum og í gær, golf, hjólreiðar, frjálsar íþróttir og bílalæti. Arctic Open golfmótinu lýkur í dag

Arctic Open meistarar krýndir í kvöld

Alþjóðlega miðnæturgolfmóti Golfklúbbs Akureyrar, Arctic Open, lýkur í dag með lokahófi þar sem verðlaun verða afhent. 

  • 20. júní
    Lokahóf Arctic Open kl. 19.

Götuhjólreiðar í Svarfaðardal

Hjólreiðahátíðin heldur áfram í dag þegar Íslandsmeistaramótið í götuhjólreiðum fer fram í Svarfaðardal. Upplýsingar um mótið má finna á vef Hjólreiðasambands Íslands og á Facebook-síðu Hjólreiðafélagsins.

Ræsing er við Víkurröst á Dalvík og fylgja keppendur rásbíl þaðan inn á hringinn sunnan megin í Svarfaðardal. Þaðan er hjólað réttsælis um hringinn. Keppni hefst kl. 10.

  • Elite-flokkur karla - sex hringir - 140,4 km
  • Elite-flokkur kvenna - fjórir hringir - 117 km
  • U19 flokkur karla - fjórir hringir - 93 km
  • U19 flokkur kvenna - þrír hringir - 70 km

Meistaramót 15-22 ára heldur áfram

Annar keppnisdagur Meistaramóts Íslands í frjálsum íþróttum í flokki 15-22 ára fer fram á Þórsvellinum um helgina. Mótið hófst í gær og er áætlað að því ljúki kl. 16 á morgun, sunnudag.

Í dag er samkvæmt tímaseðli mótsins keppt í grindahlaupi, kringlukasti, langstökki, spretthlaupi, langhlaupum, spjótkasti og boðhlaupi.

Götuspyrna og „burn out“

Í dag er lokadagur Bíladaga Bílaklúbbs Akureyrar. Keppnisgreinar dagsins eru götuspyrna og „burn out“.

Siðareglur Bíladaga:

  • Við göngum og keyrum vel um bæinn okkar, jafnt gestir sem heimamenn.
  • Virðum hámarkshraða í íbúðarhverfum sem og á vegum úti.
  • Við spólum einungis á akstursíþróttasvæði Bílaklúbbs Akureyrar.
  • Gestir Bíladaga eru jákvæðir og þar af leiðandi þrælskemmtilegir.
  • Við berum virðingu fyrir náunganum og gerum Bíladaga frábæra.
  • Gestir Bíladaga ganga snyrtilega um umhverfi sitt.