Fara í efni
KA

Úrslitakeppnin: Sigur og tap hjá blakliðum KA

Úrslitakeppnir Unbroken-deilda kvenna og karla í blak hófust í vikunni. Kvennalið KA hóf þá vegferð með sigri á Völsungi, 3-1, en karlaliðið tapaði fyrir Aftureldingu, 2-3. Svo ótrúlega vildi til að deildarmeistarar beggja deilda töpuðu fyrstu viðureign á heimavelli.

Konurnar unnu fyrsta leik á heimavelli

Kvennalið KA endaði í 2. sæti deildarinnar á eftir HK og mætir því Völsungi, sem endaði í 3. sætinu, í undanúrslitum. Fyrsta viðureign liðanna fór fram á Akureyri á miðvikudagskvöld. KA vann fyrstu tvær hrinurnar nokkuð örugglega, en Völsungur náði að svara í þriðju hrinunni. Það dugði þeim þó skammt því KA vann fjórðu hrinuna örugglega og leikinn þar með.

KA - Völsungur 3-1 (25-16, 25-20, 16-25, 25-13)

Leikskýrslan

Önnur viðureign liðanna fer fram á Húsavík á mánudag, annan í páskum og hefst kl. 14. Vinna þarf tvo leiki í einvíginu til að fara í úrslitaeinvígi um Íslandsmeistaratitilinn. KA getur því komið sér áfram í úrslit með því að sigra Völsung á annan í páskum. Hin viðureignin er á milli HK og Aftureldingar. HK vann deildarmeistaratitilinn, en tapaði 2-3 fyrir Aftureldingu í fyrsta leik.

Ef Völsungur vinnur á Húsavík verður oddaleikur liðanna í KA-heimilinu fimmtudaginn 9. apríl.

Karlarnir töpuðu heima í fyrsta leik

Karlalið KA endaði í 2. sæti Unbroken-deildarinnar, eins og kvennaliðið. Hamar í Hveragerði vann deildarmeistaratitilinn. KA mætir Aftureldingu, sem endaði í 3. sæti deildarinnar, í undanúrslitum. KA byrjaði á heimavelli, en það dugði þeim ekki til sigurs. KA komst tvívegis yfir í leiknum, vann fyrstu lotuna, en Mosfellingar jöfnuðu. KA vann þriðju hrinuna og komst í 2-1

KA - Afturelding 2-3 (25-19, 15-25, 25-17, 20-25, 11-15)

Leikskýrslan

Vinna þarf tvo leiki til að komast áfram í úrslitaeinvígið. Það kemur því ekkert annað til greina fyrir KA en að vinna á þriðjudagskvöldið í Mosfellsbænum til að knýja fram oddaleik. Takist það mætast liðin í oddaleik á Akureyri föstudaginn 10. apríl. 

Eins og í úrslitakeppni kvenna byrjuðu deildarmeistararnir á tapi á heimavelli. Þróttarar., sem enduðu í 4. sæti deildarinnar, gerðu sér lítið fyrir og unnu Hvergerðinga í fimm hrinu leik.