Fara í efni
KA

Úrslitakeppni karla í blaki að hefjast

Fjögur efstu liðin í Unbroken-deild karla í blaki fara í úrslitakeppni deildarinnar og hefja leik í kvöld.

KA endaði í 2. sæti deildarinnar og mætir Aftureldingu, sem endaði í 3. sætinu, í undanúrslitum. Hin viðureignin er á milli deildarmeistara Hamars og Þróttar R.

  • Unbroken-deild karla í blaki
    Undanúrslit, leikur 1
    KA-heimilið kl. 14
    KA - Afturelding

Vinna þarf tvær viðureignir til að fara áfram í úrslitaeinvígi deildarinnar. Annar leikur liðanna verður í Mosfellsbæ 7. apríl og oddaleikur á Akureyri 10. apríl, ef þarf.

Þessi lið mættust þrisvar í deildinni í vetur og vann KA allar viðureignirnar. Sú fyrsta endaði með 3-1 sigri KA í Mosfellsbæ í október, síðan 3-2 á Akureyri í febrúar og 3-0 á Akureyi í mars.