Fara í efni
KA

Þór vann aftur eftir vítakeppni – MYNDIR

Þessir ungu Þórsarar fóru glaðir heim á leið eftir úrslitaleikinn. Myndir: Skapti Hallgrímsson og Ármann Hinrik

Þór vann Kjarnafæðismótið í knattspyrnu í gær, eins og akureyri.net sagði frá, eftir jafntefli við KA í úrslitaleik og vítaspyrnukeppni. Til stóð að leikurinn væri fram á Greifavelli KA en mótshaldarar – Knattspyrnudómarafélag Norðurlands – ákváðu í ljósi veðurspár að færa viðureignina inn í Bogann. Það reyndist góð ákvörðun því um það bil sem fyrri hálfleik lauk var komið algjört skítaveður ...

Staðan var 1:1 að loknum venjulegum leiktíma og því var gripið til vítaspyrnukeppni, eins og á síðasta ári, þegar Þórsarar unnu líka eftir sigur KA sjö ár í röð fram að því.

Bæði lið leika í efstu deild Íslandsmótsins, Bestu deildinni, og stutt er í að alvaran hefjist; deildin byrjar eftir hálfan mánuð en um næstu helgi hefja bæði félög leik í bikarkeppni KSÍ, Mjólkurbikarnum; Þór tekur á móti FH í Boganum og KA sækir Hött heim austur á landi.

  • Frétt akureyri.net í gærkvöldi:

Þórsarar sigruðu annað árið í röð

ÞÓR - KA 1:0 Bjarni Guðjón Brynjólfsson náði forystu fyrir Þór á 57. mínútu með stórkostlegu skoti utan vítateigs. Eftir að nýr leikmaður Þórs, Isaac Atanga, reyndi skot sem fór í varnarmann hrökk boltinn út fyrir teig og Bjarni Guðjón lét vaða viðstöðulaust; þrumaði að marki, boltinn small í stönginni fjær og skaust þaðan í netið.

ÞÓR - KA 1:1  Jakob Héðinn Róbertsson jafnaði fyrir KA með marki af stuttu færi skömmu fyrir leikslok eftir þunga sókn. Bjarki Fannar Helgason flýtti sér að sækja boltann í netið og skundar hér til baka að miðlínu til að hægt sé að hefja leik sem fyrst, í þeirri von að skora aftur.

VÍTASPYRNUKEPPNIN Í GÆR

ÞÓR - KA 1:2 Hallgrímur Mar Steingrímsson tók fyrstu spyrnuna fyrir KA og skoraði mjög örugglega.

ÞÓR - KA 2:2 Sigfús Fannar Gunnarsson tók fyrsta víti Þórs, minnstu munaði að Steinþór Már Auðunsson verði skotið en boltinn smaug undir hann og í markið.

ÞÓR - KA 2:3 Valdimar Logi Sævarsson skoraði fyrir KA. Aron Birkir Stefánsson var ekki langt frá því að verja en skotið var hnitmiðað og alveg út við stöng. 

ÞÓR - KA 3:3 Christian „Greko“ Jakobsen skoraði af miklu öryggi fyrir Þór; Steinþór giskaði á rétt horn en skotið var fast og boltinn fór ofarlega í markhornið.

ÞÓR - KA 3:4 Steinþór Már Auðunsson markvörður KA er gríðarlega örugg vítaskytta og brást ekki bogalistin.

ÞÓR - KA 4:4 Þórsarinn Hermann Helgi Rúnarsson skoraði líka af miklu öryggi.

ÞÓR - KA 4:5 Diego Montiel var öryggið uppmálað þegar hann tók næsta víti.

ÞÓR - KA 4:5 Steinþór Már KA-maður varði spyrnu Ingimars Arnars Kristjánssonar.

ÞÓR - KA 4:5 Hans Viktor Guðmundsson gat því tryggt KA sigur í leiknum og mótinu, en Aron Birkir sá við honum – annað árið í röð. Hans Viktor tók síðasta vítið í fyrra, Aron varði og Þór vann þar með mótið. Skot KA-mannsins var fast að þessu sinni en Þórsarinn varði með miklum tilþfirum.

ÞÓR - KA 5:5 Ágúst Eðvald Hlynsson jafnaði með óverjandi skoti og þar með varð að grípa til bráðabana.

ÞÓR - KA 5:6 Jakob Héðinn Róbertsson kom KA yfir á ný.

ÞÓR - KA 6:6 Aron Ingi Magnússon jafnaði; sendi boltann nánast á sama stað og Jakob Héðinn.

ÞÓR - KA 6:7 Bjarki Fannar Helgason skoraði örugglega.

ÞÓR - KA 7:7 Kristófer Kristjánsson sendi boltann efst í hornið. Steinþór Már átti ekki möguleika á að verja þótt hann henti sér í rétta átt.

ÞÓR - KA 7:7 Mikael Breki Þórðarson skaut yfir markið, og þar með voru Þórsarar með pálmann í höndunum ...

ÞÓR - KA 8:7 Yann Emmanuel Affi sá um að klára dæmið fyrir Þórsara. Steinþór „las“ hann ekki rétt og varnarjaxlinn sendi boltann rétta leið.