Fara í efni
KA

Þór hefur oftast mætt Fram í deildakeppninni

Atli Sigurjónsson með boltann í 1:0 sigri Þórs á Fram í Bestu deildinni á heimavelli fyrr í sumar. Einar Freyr Halldórsson er til vinstri. Þórsarar hafa mætt Frömurum oftar en nokkru öðru liði í deildakeppni Íslandsmótsins. Mynd: Ármann Hinrik

Fram er það félag sem hefur oftast verið andstæðingur Þórs í deildakeppni Íslandsmóts karla í knattspyrnu en Þór og Fram hafa mæst í 52 leikjum frá árinu 1977 og þar til í ár.

Eins og sagt var frá hér á akureyri.net fyrr í morgun var leikur Þórs gegn ÍA á Akranesi síðastliðinn sunnudag eitt þúsundasti leikur félagsins í deildakeppni frá því það hóf sjálfstæða þátttöku á Íslandsmóti meistaraflokks karla árið 1975. 

Næst kemur KA sem hefur mætt Þór í 51 skipti í deildaleik og fimmtugasti leikurinn var því viðureign liðanna á Þórsvellinum í vor þar sem KA vann 1-0 með marki Hallgríms Mars Steingrímssonar.

Talsverðar líkur eru á að Akureyrarliðin mætist í þriðja sinn á þessu tímabili þegar Bestu deildinni verður skipt í efri og neðri hluta í haust og þá myndi KA jafna við Fram sem sá andstæðingur sem Þór hefur oftast mætt í deildaleik.

Þór hefur næst oftast mætt KA í deildakeppninni. Akureyrarfélögin mættust í fyrsta skipti þegar þau léku til úrslita í 3. deild, neðstu deild Íslandsmótsins, á Akureyrarvelli haustið 1975. Þórsarar unnu 4:0 með mörkum Óskars Gunnarssonar, Aðalsteins Sigurgeirssonar (úr víti), Guðna Jónssonar (í síðasta leik hans á ferlinum) og Jóns Lárussonar. Aðalsteinn, Haraldur Helgason formaður Þórs og Samúel Jóhannsson markvörður eru að vonum ánægðir á myndinni, sem birtist á forsíðu Akureyrarblaðsins Íslendings eftir úrslitaleikinn.

Þór hefur 48 sinnum mætt Víkingi úr Reykjavík, 47 sinnum Þrótti úr Reykjavík, 45 sinnum mætt Keflavík og mætti Skagamönnum í 42. skipti í þessum tímamótaleik á Akranesi í dag. Þór hefur mætt 58 mismunandi félögum/liðum í þessum eitt þúsund leikjum og heildaryfirlit yfir andstæðingana má sjá hér fyrir neðan. Leikjafjöldinn fremst og svo árin sem Þór hefur mætt viðkomandi félagi.

Mótherjar Þórs í leikjafjölda, eftir 18. umferð 2026:

18 Afturelding  2000-03-09-19-20-21-22-23-24
6 Austri – 1978-79-80
6 Ármann – 1976-78-80
4 BÍ/Bolungarvík – 2012-15
34 Breiðablik – 1977-79-81-83-84-86-92-94-97-98-03-04-05-11-13-14-26
4 Dalvík – 1997-01
2 Dalvík/Reynir – 2024
2 Einherji – 1982
39 FH – 1977-79-81-82-85-86-87-89-90-92-93-94-96-97-98-02-11-13-14-26
12 Fjarðabyggð – 2007-08-09-10-15-16
26 Fjölnir – 2004-05-06-07-10-12-14-19-21-22-23-24-25
52 Fram – 1977-81-84-85-86-87-88-89-90-92-93-94-96-02-06-11-13-14-15-16-17-18-19-20-21-26


Þórsarar hafa mætt Frömurum oftar en öðrum liðum í deildakeppninni síðan 1975, 52 sinnum. Hér er sagt frá fyrsta deildarleik liðanna; úrklippur úr Morgunblaðinu, til vinstri, og Vísi, sumarið 1977, fyrsta árið sem Þór léku í efstu deild Íslandsmótsins. Framarar unnu 3:1, laugardaginn 14. maí á Melavellinum í Reykjavík, malarvelli þar sem Þjóðarbókhlaðan stendur nú.


34 Fylkir – 1978-79-80-82-89-91-93-95-97-98-02-11-13-14-17-22-25
24 Grindavík – 1991-02-07-11-15-16-18-21-22-23-24-25
16 Grótta – 2010-15-17-19-21-22-23-24
32 Haukar – 1976-78-80-91-03-04-05-06-08-09-12-15-16-17-18-19
32 HK – 1995-98-99-00-03-04-05-06-09-10-15-16-17-18-22-25
2 Huginn – 2016
2 Höttur – 2012
42 ÍA – 1977-81-83-84-85-86-87-88-89-90-91-92-93-94-02-09-10-13-18-23-26
11 ÍBÍ – 1975-76-78-79-80-83
37 ÍBV – 1976-77-81-83-86-90-92-93-94-02-07-08-11-13-14-20-21-24-26
24 ÍR – 1991-95-96-97-01-09-10-12-17-18-24-25
51 KA – 1975-76-80-81-84-87-88-89-90-92-95-96-97-98-01-02-05-06-07-08-09-10-12-15-16-26
45 Keflavík – 1977-83-84-85-86-87-88-89-91-93-94-02-03-11-13-14-16-17-19-20-24-25-26
2 KÍB – 2000
4 Kórdrengir – 2021-22
38 KR – 1977-78-81-83-84-85-86-87-88-89-90-92-93-94-02-11-13-14-26
8 KS – 1999-00-01-05
2 KS/Leiftur – 2008
2 KV – 2022
4 KVA – 1998-00
4 Leiftur – 1988-01
2 Leiftur/Dalvík – 2003
6 Leiknir Fáskrúðsfirði – 2016-17-20
33 Leiknir Reykjavík – 1996-99-00-06-07-08-09-10-12-16-17-18-19-20-23-24-25
4 Léttir – 1999-00
10 Magni – 1975-79-18-19-20
22 Njarðvík – 1982-03-04-07-08-10-18-19-23-24-25
2 Reynir Árskógsströnd – 1976
10 Reynir Sandgerði – 1978-79-82-97-07
32 Selfoss – 1976-79-80-91-99-00-08-09-15-16-17-18-21-22-23-25
2 Sindri – 1999
8 Skallagrímur – 1982-95-96-98
27 Stjarnan – 1990-94-95-98-01-03-04-06-07-08-11-13-14-26
8 Tindastóll – 1991-99-01-12
2 UMSE – 1975
2 USAH – 1975
36 Valur – 1977-81-83-84-85-86-87-88-89-90-92-93-94-04-11-13-14-26
8 Vestri – 2020-21-22-23
10 Víðir – 1985-86-87-95-00
23 Víkingur Ólafsvík – 2005-06-07-08-09-12-13-15-18-19-20-21
48 Víkingur Reykjavík – 1977-81-83-84-85-88-89-90-92-93-95-96-97-98-01-03-05-08-09-10-11-12-14-26
22 Völsungur – 1976-78-80-82-87-88-96-99-04-05-25
9 Þróttur Neskaupstað – 1975-78-79-80-82
47 Þróttur Reykjavík – 1976-82-83-84-85-91-95-96-97-01-04-06-07-10-12-15-17-18-19-20-21-23-24-25
2 Þróttur Vogum – 2022
4 Ægir – 1999-23