Stærra baðlón ekki opnað fyrr en í haust

Stærra baðlón Skógarbaðanna, sem átti að opna í júní, verður ekki opnað fyrr en í haust. Framkvæmdir hafa gengið vel í vetur en tafir á afhendingu sérsmíðaðra glugga og hurða tefja nú verklok.
„Við erum í raun komin mjög langt með verkið og hefðum getað verið að opna baðlónið í sumar ef ekki hefði verið fyrir það að enn vantar glugga og hurðir á þjónustuhús og bar, en við getum ekki opnað fyrr en búið er að loka þessum byggingum,“ segir Sigríður María Hammer, stjórnarformaður og einn eiganda Skógarbaðanna, en eins og Akureyri.net hefur áður greint frá er verið að stækka baðlón Skógarbaðanna um 700 fm, en lónið fer úr 500 fm í 1200 fm.
Framkvæmdir við stækkun Skógarbaðanna hafa gengið vel í vetur en nú seinkar opnun vegna seinkunar á framleiðslu glugga og hurða.
Hér má sjá yfir nýja baðsvæðið sem bætist við núverandi baðlón Skógarbaðanna. Þá mun einnig nýtt vellíðunarsvæði tengjast baðlóninu, en þar verður boðið upp á meiri spa-upplifun eins og nudd, kaldan pott og maskabar.
Iðnaðarmenn hafa lagt hart að sér
Þar sem um sérstakar glugga- og hurðaeiningar er að ræða, sem gerðar eru úr áli sem samræmist hönnun og gæðakröfum hússins hafi ekki heldur verið hægt að fá þessa hluti annars staðar frá. „Þetta þarf að passa bæði útlitslega og tæknilega við það sem fyrir er,“ útskýrir Sía og bætir við að þessi framleiðslutöf sé vissulega svekkjandi þar sem iðnaðarmenn hafi lagt svo hart að sér að keppast við að klára sína verkþætti í vetur til að hægt væri að opna lónið í sumar. „Þessar framleiðslutafir hafa hins vegar engin áhrif á okkar sumargesti nema að við sjálf hlökkuðum svo til að bjóða gestum upp á nýja upplifun strax í sumar.”
Þurrgufa í speglahúsi á vellíðunarsvæðinu. Gufan er staðsett í skógarrjóðri. Gestir inn í gufunni sjá út en þeir sem eru fyrir utan sjá ekki inn.
Paranudd, sólbekkir og maskabar
Stækkunin er í raun tvískipt. Annars vegar mun núverandi baðlón stækka um 300 fm til suðurs en við stækkunina fá gestir enn meiri skógarupplifun þar sem lónið er með tré bæði í vestur og austurátt. Við stækkunina verða fleiri setbekkir ofan í lóninu og þá bætist við bar og salernisaðstaða.
Á þessu svæði viljum við bjóða upp á rólega og endurnærandi upplifun fyrir gesti sem vilja dvelja lengur í lóninu. Það hefur verið sífellt meiri eftirspurn eftir dagspökkum með meiri þjónustu, og við erum að svara þeirri þörf með þessari viðbót.
Hins vegar snýst stækkunin um lokað 400 fm Spa-svæði sem verður aðgreint frá almenna lóninu. Spa-svæðið verður opið fyrir gesti á nýju hóteli sem er í byggingu við Skógarböðin og stefnt er á að opni árið 2027. Aðrir geta líka keypt sér aðgang að þessu lokaða vellíðunarsvæði. Aðgangurinn mun kosta meira en ofan í hið hefðbundna baðlón enda er meira innifalið, eins og aðgangur að köldum potti, sjóndeildarlaug (e.infinity pool – útsýni gesta í lauginni er þannig að laugin virðist endalaus), maskabar og sólbekkjum. Þá verður nuddstofa í þessum hluta baðlónsins þar sem pör geta bókað sig saman í paranudd. Eins gefst gestum svæðisins kostur á því að fara í blautgufu og þurrgufu sem staðsett verður í speglahúsi inni í skógarrjóðri. Svæðið verður allt hið glæsilegasta og spilar efniviður úr náttúrunni stórt hlutverk í að gera upplifunina eftirminnilega og afslappandi. „Á þessu svæði viljum við bjóða upp á rólega og endurnærandi upplifun fyrir gesti sem vilja dvelja lengur í lóninu. Það hefur verið sífellt meiri eftirspurn eftir dagspökkum með meiri þjónustu, og við erum að svara þeirri þörf með þessari viðbót,“ segir Sía að lokum, vongóð um að stærra baðlón Skógarbaðanna opni seint í sumar eða snemma í haust.
Séð yfir vellíðunarsvæðið. Fremst má sjá kaldan pott, til hægri er sjóndeildarlaug (e.nfinity-pool) og húsið í fjarska mun hýsa maskabar. Þessi hluti lónsins opnar samhliða opnun hótelsins sem áætlað er að opni 2027.
Verið er að undirbúa byggingu hótels við Skógarböðin, lækurinn sem sést á myndinni mun renna í gegn um móttökuna.