Bikarinn: Þór-FH, KA gegn Hetti eða Neista
Þórsarar fá FH-inga í heimsókn í 32-liða úrslitum bikarkeppni karla í knattspyrnu, Mjólkurbikarsins, en KA leikur á útivelli gegn Hetti frá Egilsstöðum, sem leikur í D-deild Íslandsmótsins, eða Neista frá Djúpavogi sem er utan deilda. Austfirsku liðin eiga eftir að mætast í 64-liða úrslitum. Dregið var í 32-liða úrslitunum í dag.
Lið úr Bestu deildinni, efstu deild Íslandsmótsins, mætast í þremur tilfellum; auk viðureignar Þórs og FH eru það KR-Valur og Fram-Víkingur. Leikir 32-liða úrslitanna fara fram eftir hálfan mánuð, 4.-7. apríl. Keppni í Bestu deildinni hefst nokkrum dögum síðar; Akureyrarfélögin hefja bæði leik sunnudaginn 12. apríl, KA á heimavelli gegn Stjörnunni en Þór á útivelli gegn Val.
Leikir í 32-liða úrslitanna eru þessir, í þeirri röð sem dregið var:
ÍBV - Þróttur R./Víkingur Ó.
Vestri - Leiknir R./Smári
ÍA - Haukar/KFR
Fjölnir/Víðir - HK/BF108
KR - Valur
- Þór - FH
Stjarnan - Selfoss/Augnablik
Fylkir/KV - KFA/Sindri
Léttir/Stokkseyri/Árbær - Ægir/Reynir S.
Grótta/Úlfarnir - Álftanes/Kári
Tindastóll/Magni - Njarðvík/Hvíti Riddarinn
Elliði/Grindavík - Keflavík
Völsungur/Kormákur/Hvöt - Breiðablik
Fram - Víkingur R.
- Höttur/Neisti D. - KA
ÍR/Afturelding - Ýmir/KFS/Þorlákur