Fara í efni
KA

Allir með: Æfingar með meiri stuðningi

Í sumar verða vikulegar fótboltaæfingar í Boganum undir formerkjum verkefnisins Allir með. Æfingarnar eru sérstaklega ætlaðar börnum sem þurfa meiri stuðning, henta betur í minni hópum eða hafa gagn af því að fleiri þjálfarar séu til staðar á æfingum. Allir geta tekið þátt á sínum forsendum.

Í frétt á vefsíðu Akureyrarbæjar kemur fram að æfingarnar byggi á stöðvaþjálfun og skipulögðum æfingum og að markmiðið sé skapa aðgengilegt og jákvætt umhverfi fyrir öll börn.

Æfingarnar fara fram í Boganum á miðvikudögum kl. 16:15-17:00. Skráning fer fram í Abler eða á staðnum. Æfingagjald er 10.000 krónur. Fyrsta æfingin er  í dag, miðvikudaginn 3. júní.

Frekari upplýsingar veita íþróttafulltrúar Þórs og KA:

Allir með er samstarfsverkefni ÍSÍ, UMFÍ og Íþróttasambands fatlaðra sem hefur það að markmiði að efla þátttöku fatlaðra barna og ungmenna í íþróttum. Verkefnið er styrkt af félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu, heilbrigðisráðuneytinu og mennta- og barnamálaráðuneytinu.