Fara í efni
Jóladagatalið 2021

Fái lóð í Móahverfi fyrir þjónustu við aldraða

Mynd: Þorgeir Baldursson

Skipulagsráð Akureyrar vill að fyrirtækið Heilsuvernd fái vilyrði fyrir lóð við Borgarmóa í hinu nýja Móahverfi nyrst í bænum, án auglýsingar, til uppbyggingar heilbrigðisþjónustu og þjónustuíbúða fyrir aldraða. 

Heilsuvernd, sem rekur bæði Hlíð og Lögmannshlíð, hjúkrunarheimilin tvö fyrir aldraða á Akureyri, skv. samningi við Sjúkratryggingar Íslands, telur sig ekki geta beðið eftir að nýtt hjúkrunarheimili rísi við Þursaholt vegna bágborins ástands á álmum 1 og 2 á Hlíð. Gert er ráð fyrir að heimilið við Þursaholt verði tilbúið 2029 eða 2030.

Heilsuvernd óskaði á dögunum eftir úthlutun lóðar við Þingvallastræti 23 undir „heilbrigðisþjónustu fyrir aldraða í tímabundna dvöl og endurhæfingu, auk þjónustu við þá starfsemi“ en skipulagsráð hafnaði því að úthluta lóðinni þar sem hún hefur ekki verið auglýst, en fól skipulagsfulltrúa að ræða við umsækjanda um mögulega staðsetningu fyrir fyrirhugaða þjónustu.

Gatan Borgarmói verður í norðausturhorni hins nýja Móahverfis, steinsnar ofan efstu húsa í Síðuhverfi. Mynd úr deiliskipulagstillögu fyrir hverfið.

Á fundi skipulagsráðs í gær var aftur fjallað um erindi Heilsuverndar og meirihluti ráðsins leggur til við bæjarráð og bæjarstjórn að gerður verði samningur við Heilsuvernd um uppbyggingu heilbrigðisþjónustu fyrir eldri borgara, þar á meðal fyrir tímabundnar dvalir, endurhæfingu og leiguíbúðir. Lagt er til að Heilsuvernd fái í kjölfarið vilyrði fyrir lóð við Borgarmóa án auglýsingar.

„Endanleg úthlutun getur þó ekki farið fram fyrr en skipulagsbreytingum hefur verið lokið og skrifað hefur verið undir samkomulag um starfsemina,“ segir í fundargerð skipulagsráðs. Ráðið leggur jafnframt áherslu á að þrátt fyrir að fyrirhuguð uppbygging verði að meginstefnu ætluð þjónustu og íbúðum fyrir eldri borgara, verði áfram gert ráð fyrir almennri verslunar- og þjónustustarfsemi í hluta jarðhæðar húsnæðisins.

Jón Hjaltason óflokksbundinn sat hjá við afgreiðslu og óskaði bókað: „Ég vil ekki vera þröskuldur í vegi þeirra framkvæmda sem hér um ræðir. Vil þó eindregið mælast til þess að kannað verði hvort setja megi umrædda þjónustu niður vestan Kjarnagötu svo verði hluti lífsgæðakjarna sem þar er fyrirhugaður.“

Sóley Björk Stefánsdóttir, fulltrúi VG, sat einnig hjá við afgreiðslu og lét bóka eftirfarandi:

„Ég er mjög sátt við að Heilsuvernd fái vilyrði fyrir lóð undir heilbrigðisþjónustu við eldri borgara, þar á meðal tímabundnar dvalir og endurhæfingu. Ég geri ekki athugasemdir við þessa staðsetningu og fagna því að ákvörðun um að slík úthlutun sé tekin eins hratt og raun ber vitni. Ég tel þó óeðlilegt að tekin sé afstaða til úthlutunar lóða til reksturs leiguíbúða á hagnaðargrundvelli án þess að meiri umræða fari fram um það og greiði því ekki atkvæði með ákvörðuninni.“

  • Frétt akureyri.net í síðustu viku:

Heilsuvernd í tímaþröng og óskar eftir lóð