Fara í efni
Jóladagatalið 2021

Aukin þjónusta um versló kom vel út

Aukin þjónusta Strætisvagna Akureyrar um verslunarmannahelgina kom nokkuð vel út og var nýtt af gestum Einnar með öllu, en mismunandi þó eftir leiðum. Engilbert Ingvarsson, rekstrarstjóri Strætisvagna/ferliþjónustu Akureyrar, segir ekkert vesen hafa verið í kringum þennan akstur og af hálfu SVA sé lítið mál að endurtaka leikinn að ári, en þó með einhverjum lagfæringum miðað við þá reynslu sem skapaðist í þetta fyrsta skipti. Ekki voru þó framkvæmdar formlegar talningar á farþegum um verslunarmannahelgina.

Aukaþjónustan fólst annars vegar í að leiðir 1, 3 og 5, sem alla jafna aka ekki um helgar, voru á ferðinni frá því um hádegi og fram á kvöld á laugardeginum og sunnudeginum. Þá var það tímabil sem leið 6 var í boði lengt, en sá vagn er að jafnaði í boði frá hádegi fram undir kvöldmat um helgar. Hins vegar voru kvöldvagnar í boði í tengslum við tónleika og böll, og í tengslum við Skógardaginn í Kjarnaskógi.

Engilbert segir að farþegar hafi ekki áttað sig strax á því að fleiri vagnar væru í boði, en það hafi svo komið. Vagninn á leið 6 var nánast alltaf fullur, en leið 5 minnst notuð. Þessir vagnar aka sömu akstursleiðina, leið 6 rangsælis frá miðbænum, en leið 5 réttsælis. Kvöldvagnarnir sem voru í boði í tengslum við tónleika og böll á Akureyrarvelli og í Boganum voru þokkalega mikið notaðir, en þó nánast ekkert af heimafólki, að sögn Engilberts.

Kvöldleiðirnar sem í boði voru:

  • Leið A: Miðbær - Síðuskóli - Glerárskóli
  • Leið B: Miðbær - Skautahöllin - Naustaskóli - Hamrar
  • Leið C: Miðbær - Giljaskóli - Bílaklúbbur Akureyrar
  • Leið D: Miðbær - Hrísalundur - VMA

Mest notaða kvöldleiðin var leið B frá tjaldsvæðinu að Hömrum. Engilbert segir að sú leið hefði þurft að vera í boði tvisvar á klukkustund í stað einu sinni. Leið C var minnst notuð, leið D meira á laugardeginum og með leið A fór töluvert af farþegum í Bogann þar sem haldin voru böll.

Í tengslum við Skógardaginn sem haldinn var í Kjarnaskógi á sunnudeginum voru ferðir vel nýttar og fóru farþegar gjarnan með leið 6 yfir í Hagahverfi og skiptu í Kjarnaskógsvagninn við Nonnahaga.