Fara í efni
Hörgársveit

Skapandi heimur og „föt frá fyrri tíð“

Sóley Eva Magnúsdóttir og Ylfa Rún Arnarsdóttir, eigendur Kex Studio.

Kex Creative Studio á Akureyri er meira en hefðbundin fataverslun. „Kex Studio er verslun með föt frá fyrri tíð, eins og viö köllum það  – „vintage“ fataverslun – og skapandi rými,“ segja þær Sóley Eva Magnúsdóttir og Ylfa Rún Arnarsdóttir, eigendur Kex Studio, en þar er hægt að nálgast endurunnin föt, list og hannyrðir í umhverfi sem byggir á sköpun og samfélagi, eins og þær segja. Kex Studio er staðsett í Týsnesi 14 - iðnaðarbili á Akureyri sem þær stöllur sáu sjálfar um að gera upp.


  • Kex creative studio er eitt af sjö nýsköpunarverkefnum sem DriftEA valdi í svokallaðan Hlunn og fá þau verkefni heildstæða aðstöðu, ráðgjöf og þjálfara hjá Drift EA. Auk þessa voru fjögur önnur öflug samfélagsleg verkefni valin í Drift EA sem fá ráðgjöf og aðstöðu.
  • Akureyri.net mun kynna umrædd verkefni á næstunni. Þegar hefur verið fjallað um Unni Verkbókhald, en frumkvöðlarnir á bak við það kalla Unni „besta vin iðnaðarmannsins“, Orkey á Akureyri, sem framleiðir lífdísil úr íslenskri úrgangsolíu, PTassistance sem hefur þróað stafræna lausn sem ætlað er að einfalda samskipti milli sjúkraþjálfara og skjólstæðinga og styðja við árangursríka endurhæfingu og Mannkennd, fyrstu og einu íslensku bókaútgáfuna sem sérhæfir sig í hágæða barnabókum um fötlunarfjölbreytileika.

  • DriftEA er miðstöð frumkvöðla og nýsköpunar sem tók til starfa á Akureyri á síðasta ári.
  • Síðasta sumar fengu 13 verkefni inngöngu í nýsköpunarhraðal sem nefnist Slipptaka hjá DriftEA. Næsta skrefið að Slipptöku lokinni er Hlunnurinn incubator sem er að sænskri fyrirmynd en DriftEA er í samstarfi við sænska frumkvöðlasetrið Sting.

Hugmyndin hefur frá upphafi snúist um meira en sölu. „Við sáum alltaf fyrir okkur að byggja upp samfélag með Kex Studio, þetta á að vera meira en bara fatabúð,“ sögðu þær þegar verslunin opnaði fyrst á Akureyri. Að sögn þeirra kviknaði verkefnið bæði út frá áhuga þeirra á „vintage“ tísku og skorti á framboði hérlendis. „Eftir að hafa búið erlendis fannst okkur þurfa að bæta úrvalið hérna heima,“ sagði Sóley á sínum tíma í samtali við akureyri.net, en fljótlega varð einnig til sú hugmynd að skapa vettvang fyrir listafólk. „Okkur fannst tilvalið að blanda saman fataverslun og vettvangi fyrir lista- og hönnunarfólk að sýna og selja verkin sín.“

Í dag endurspeglast þetta í starfseminni, þar sem Kex er bæði verslun og skapandi rými, og þær leggja áherslu á að vera virkar í samfélaginu. Þær hafa tekið þátt í fjölbreyttum viðburðum og haldið pop-up viðburði víða um land. „Við erum alltaf opnar fyrir einhverju skemmtilegu,“ segja þær. Samhliða því hafa þær byggt upp sterkan fylgjendahóp og fasta kúnna, meðal annars í kringum svokölluð „dropp“ þar sem nýjar vörur eru kynntar í viðburðaformi. „Það myndast svona ‘fyrsti kemur, fyrstur fær’ stemning,“ bæta þær við.

Þær Ylfa Rún og Sóley reka fyrirtækið saman og skipta með sér verkum eftir styrkleikum. Sóley sér að stórum hluta um myndefni og markaðsmál, en Ylfa Rún nýtir bakgrunn sinn í húsasmíði til að þróa lausnir fyrir reksturinn. „Hún er svona húsvörðurinn hjá okkur,“ segir Sóley og nefnir sem dæmi smíði á myndatökubúnaði og leikmunum. Að þeirra sögn hefur þessi blanda myndað öflugt teymi sem lætur ekkert stöðva sig.

Nafnið Kex á sér einnig sögu. „Það kemur frá þeirri hugmynd að nýta gamla húsnæði Kexsmiðjunnar á Akureyri,“ sagði Ylfa Rún í samtali við akureyri.net í september, þó sú hugmynd hafi ekki orðið að veruleika. „Nafnið lifði hins vegar áfram,“ og að þeirra sögn varð það að styrk að þurfa að aðlaga sig og nýta annað rými.

Þátttaka í Slipptökunni og Hlunninum hjá Drift EA hefur síðan reynst þeim mikilvæg í áframhaldandi þróun. „Það var mjög lærdómsrík upplifun og gaf okkur bæði hvata og meiri trú á verkefnið,“ segja þær. Þær nefna sérstaklega hversu dýrmætt það hafi verið að umgangast aðra frumkvöðla. „Að spjalla og skjóta hugmyndum fram og til baka skapaði mjög hvetjandi umhverfi.“

Á leiðinni hafa þær lært ýmislegt. „Við hefðum viljað vita meira um fjármál,“ viðurkenna þær, en benda jafnframt á að margt lærist best með reynslunni. Þá leggja þær áherslu á mikilvægi markaðssetningar og góðs bókara.

Þær finna skýrt fyrir aukinni eftirspurn eftir fötum frá fyrri tíð („vintage“) og sjálfbærri tísku. „Já, klárlega – og við vonum að þetta sé ekki bara tískubylgja heldur eitthvað sem festir sig í sessi,“ segja þær, og bæta við að viðskiptavinir utan Akureyrar séu oft djarfari í vali og tilbúnari að eyða meira.

Framundan er áframhaldandi uppbygging þar sem þær eru enn að fínpússa reksturinn og finna sinn takt. Markmiðið næsta árið er einfalt: „Að vera reynslunni ríkari.“

Að lokum nefna þær uppáhaldsfund sem stendur upp úr – „Red Bull mótorhjóla jakkarnir sem við fundum í fyrstu vinnuferðinni okkar til Amsterdam“ – og skilja eftir einföld en áhrifarík skilaboð til annarra frumkvöðla: „First, make it exist – make it perfect later.“