Hollvinasamtök Sjúkrahússins á Akureyri
Götulokanir, drónabann og hundarnir heima
27.08.2026 kl. 16:00
Það hefur líklega ekki farið framhjá Akureyringum að fram undan um helgina er Akureyrarvaka, með um 100 viðburðum víða um bæinn, en þó verður mest um að vera í miðbænum og nágrenni.
Að venju verður tilteknum götum lokað vegna þeirra viðburða og mannfjölda sem væntanlega sækir miðbæinn um helgina.
- Miðbærinn - lokað frá kl. 12 á föstudag til kl. 9 að morgni sunnudags. Hér er átt við göngugötuna, þ.e. Hafnarstræti frá Kaupvangsstræti að Ráðhústorgi, Ráðhústorgið sjálft, Túngötu, Strandgötu milli Hofsbótar og Ráðhústorgs og Skipagötu milli Hofsbótar og Ráðhústorgs.
- Kaupvangsstræti frá Eyrarlandsvegi niður að Hafnarstræti - Listagilið - lokað frá kl. 12 á laugardag til kl. 9 að morgni sunnudags.
- Mýrarvegur milli Goðabyggðar og Vanabyggðar, sem og Hrafnagilsstræti frá Mýrarvegi að Byggðavegi - lokað kl. 16-19 á laugardag vegna garðtónleika í Hrafnagilsstrætinu. Hrafnagilsstræti þó opið fyrir íbúa í götunni.
Akureyrarbær hvetur fólk til að fá sér ókeypis far með strætisvögnum, nota umhverfisvænar samgöngur og minnir á að fátt er hollara en góð gönguferð.
Skiljið hundana eftir heima
Í tilkynningu Akureyrarbæjar er vísað í samþykkt Akureyrarbæjar um hundahald:
- Vakin er athygli á því að samkvæmt 12. grein samþykktar Akureyrarbæjar um hundahald er óheimilt að fara með hunda á samkomur eins og Akureyrarvöku.
- Umferð dróna er bönnuð nema með leyfi hátíðarhaldara og flugturns Akureyrarflugvallar.
