Fara í efni
Hjólreiðar

Dramatík í sigri KA á Skagamönnum

Sveinn Margeir Hauksson skallar knöttinn í netið eftir fyrirgjöf frá Danijel Dejan Djuric og jafnar í 2:2. Jón Sölvi Símonarson í marki ÍA er of seinn að ná til boltans. Mynd: Ármann Hinrik.

KA vann dramatískan 3:2 endurkomusigur gegn ÍA á KA-vellinum (Greifavöllurinn sunnan við KA-heimilið – gervigras) í efstu deild karla í knattspyrnu í kvöld. Eftir að hafa lent 2:0 undir náðu KA-menn að jafna leikinn og tryggja sér langþráðan sigur með síðustu spyrnu leiksins.

Fyrir leikinn hafði KA tapað sex leikjum í röð og færst neðar og neðar í deildinni. Í síðasta leik voru þó töluverð batamerki á leik liðsins, sem gáfu góð fyrirheit. Skagamenn hafa líka verið í basli undanfarið og leikurinn í kvöld því gríðarlega þýðingarmikill fyrir bæði lið.

Rokið gaf ÍA hornspyrnu

Sterkur hliðarvindur hafði talsverð áhrif á gæði leiksins og í fyrri hálfleik var lítið um marktækifæri en þeim mun meira um baráttu. Eina mark fyrri hálfleiks gerðu gestirnir og þar hafði vindurinn töluverð áhrif. Hans Viktor Guðmundsson renndi knettinum aftur á Steinþór Má Auðunsson í KA-markinu á 38. mínútu – ósköp eðlileg sending nema hvað vindurinn hraðaði för boltans það mikið að Steinþór náði ekki til hans og boltinn fór út fyrir endamörk. Hornspyrna sem Rúnar Már S. Sigurjónsson tók og Gísli Eyjólfsson sneiddi knöttinn laglega í fjærhornið af markteig. Á lokamínútu fyrri hálfleiks skapaðist hætta í markteig Skagamanna en Jón Sölvi Símonarson í markinu náði að komast fyrir knöttinn.

Leikurinn opnaðist meira eftir hlé og nokkuð var um hættuleg markfæri. Steinþór Már bjargaði tvisvar vel snemma í hálfleiknum, auk þess sem KA bjargaði einu sinni nánast af marklínu. Fyrsta alvörufæri KA kom á 55. mínútu þegar Sveinn Margeir Hauksson var skyndilega kominn einn í gegn en Jón Sölvi bjargaði vel. Stuttu síðar skoruðu Skagamenn sitt annað mark, eftir að vítaspyrna var dæmd á Steinþór markvörð fyrir að strauja Gísla Eyjólfsson í vítateignum. Rúnar Már skoraði örugglega úr vítinu og staðan orðin vænleg fyrir gestina.

Dramatísk endurkoma KA

En það tók KA ekki nema þrjár mínútur að svara fyrir sig og það mark var sannarlega af dýrari gerðinni. Sveinn Margeir fékk boltann frá Hallgrími Mar Steingrímssyni, langt fyrir utan vítateig ÍA, og lét vaða að marki. Stórkostlegt skot sem hafnaði uppi í markhorninu. Sannarlega eitt af mörkum sumarsins. Á næstu mínútum fengu bæði lið tækifæri til að bæta við marki og á 72. mínútu kom jöfnunarmarkið. Danijel Dejan Djuric kom með góða sendingu inn í teig frá vinstri og Sveinn Margeir kom þar á ferðinni og stangaði boltann í markið.

Síðustu 20 mínútur leiksins var baráttan í algleymingi en leikurinn virtist ætla að fjara út í jafntefli, sem hvorugt liðið hefði verið ánægt með. En á síðustu mínútu uppbótartímans réðust úrslitin. Jakob Snær Árnason sneri varnarmenn ÍA laglega af sér, komst upp hægra megin og sendi inn í teig. Þar var Jón Gísli Eyland Gíslason með Danijel Dejan bókstaflega í fanginu og tók hann niður. Klár vítaspyrna og Hallgrímur Mar steig á punktinn.

Skagamaðurinn Jón Gísli Eyland Gíslason er hér með Danijel Dejan Djuric í fanginu og fellir hann. Vítaspyrna dæmd. Mynd: Ármann Hinrik.

Jón Sölvi varði vítið hins vegar vel, en var óheppinn, því boltinn barst aftur beint út í teig þar sem Hallgrímur Mar var fyrstur á vettvang og potaði honum í markið.

Hallgrímur Mar Steingrímsson var fyrstur að knettinum eftir að Jón Sölvi Símonarson hafði varið vítið frá honum og kom boltanum í markið með síðustu snertingu leiksins. Jón Sölvi gerir sitt besta til að verja en allt kom fyrir ekki. Mynd: Ármann Hinrik.

Ótrúlegur og dramatískur sigur hjá KA og vissulega langþráður. Með sigrinum nálgast KA-menn liðin fyrir ofan sig og fá byr í seglin. 

Næsti leikur liðsins er útileikur gegn Vestmanneyingum næsta sunnudag.

Leikskýrslan á vef KSÍ

Staðan í deildinni