Fara í efni
Háskólinn á Akureyri

Listflugvélar sem vekja mikla eftirtekt

Grettir og Gormur! TF-RVA (Van's RV-4, máluð appelsínugul og eins og köttur enda gengur hún undir nafninu Grettir) og TF-BTH (Pitts Special 2-AE sem máluð er eins og teiknimyndapersónan Gormur) á Flugdegi Flugsafns Íslands árið 2022. Mynd: HG

SÖFNIN OKKAR – 122

Frá Flugsafninu á Akureyri_ _ _

Akureyri.net heldur áfram að opna dyr safnanna í bænum lesendum til fróðleiks og skemmtunar. Það er gert vikulega, á fimmtudögum.


Að þessu sinni sýnir Flugsafnið lesendum akureyri.net þrjár af fjórum flugvélum Flugsveitarinnar, en nú þegar styttist í að flugsumarið (og vonandi sumarið yfir höfuð!) hefjist mega bæjarbúar fara að vænta þess að heyra í þeim fljúga og sjá þær leika listir sínar.

Nokkrar af flugvélunum sem eru til sýnis í Flugsafninu eru í einkaeigu en þær vélar verða að hafa annað hvort mikið varðveislugildi og/eða sýningargildi. Það á við um flugvélarnar sem hér um ræðir. Þær eru allar heimasmíði og smíðaðar af miklum hagleikssmiðum og reynsluboltum í fluginu, og vekja mikla eftirtekt gesta safnsins.

Flugsveitin

Flugsveitin er skipuð þeim Sigurði Ásgeirssyni, Kristjáni Þór Kristjánssyni, Guðjóni Jóhannessyni og Þóri Gunnarssyni. Undanfarin ár hafa þeir stundað listflug af miklum móð og sýnt á flugsýningum hérlendis. Fjórða vélin sem þeir fljúga er TF-TOP, sem er í eigu Kristjáns og er hýst í öðru skýli á Akureyrarflugvelli. Flugsveitin mun hefja Flugdag Flugsafnsins með látum þegar hann verður haldinn laugardaginn 20. júní næstkomandi.

TF-ABJ og TF-TOP sýndu frábært listflugsatriði á Flugdeginum í fyrra. Mynd: HG

TF-ABJ

TF-ABJ, Pitts Special S-1, var lengi í eigu Arngríms B. Jóhannssonar og er enn merkt honum. Arngrímur keypti „kittið“ frá Bandaríkjunum árið 1994 og fékk bandaríska flugvélasmiðinn Peter Groves til að smíða vélina. Húnn Snædal lenti í óhappi á flugvélinni og endursmíðaði hann vélina fyrir vin sinn Arngrím þannig að hún varð sem ný. Arngrímur sýndi oft og iðulega listflug á vélinni en hún er nú í eigu flugstjórans Sigurðar Ásgeirssonar.

Arngrímur Jóhannsson flýgur TF-ABJ á Flugdegi Flugsafnsins 2006. Mynd: HG

TF-BTH

TF-BTH er af gerðinni Pitts Special 2-AE. Hún er smíðuð af Birni Thoroddsen, Benna Thor, sem var flugstjóri hjá Loftleiðum og síðar Flugleiðum. Smíðin tók um fimm ár, með löngum og góðum hléum eins og flugvélasmiðurinn orðaði það í viðtali við tímaritið Flug skömmu áður en fyrsta flugið var farið. Það var nánar tiltekið þann 13. apríl 1985 og síðan hefur flugvélinni verið flogið um 950 tíma. Henni hefur margoft verið flogið á flugsýningum hérlendis og vekur ávallt mikla athygli. Ekki síst vegna útlitsins, en hún er máluð eins og teiknimyndapersónan Gormur.

TF-RVA og TF-BTH á flugi á Flugdegi Flugsafnsins 2022. Mynd: HG

TF-RVA

Árni Sigurbergsson flugstjóri og flugvélasmiður smíðaði TF-RVA og lauk smíðinni 2004, en hann smíðaði nokkrar flugvélar af sömu gerð, Van's RV-4. Máluð appelsínugul og eins og köttur, gengur hún nú undir nafninu Grettir.

TF-RVA og TF-BTH tóku þátt í sögulegu flugi yfir Atlantshafið árið 2015, en þá voru liðin 70 ár frá því að farþegaflug milli Íslands og annarra landa hófst. Saman flugu tíu flugmenn á fimm heimasmíðuðum vélum í sjónflugi yfir hafið. Þeirra á meðal voru flugmennirnir og flugvélasmiðirnir Árni Sigurbergsson og Björn Thoroddsen, og Flugsveitarmeðlimirnir Sigurður Ásgeirsson og Guðjón Jóhannesson.

Morgunblaðið gerði fluginu yfir Atlantshafið góð skil enda um afar merkilegan atburð að ræða.