Fara í efni
Grunnskólar

Sigríður Huld ráðin sviðsstjóri við HA

Sigríður Huld Jónsdóttir, fyrrverandi skólameistari Verkmenntaskólans a Akureyri (VMA) og bæjarfulltrúi, hefur verið ráðin sviðsstjóri náms- og kennsluþjónustusviðs Háskólans á Akureyri (HA). Skv. nýju skipuriti skólans, sem tekur gildi í ágúst, mun stoðþjónusta og stjórnsýsla skiptast niður í fjögur svið; áður hefur verið grein frá því að Jón Steindór Árnason verður sviðsstjóri fjármála- og rekstrarsviðs.

„Ég er afar stolt af því að hefja störf við Háskólann á Akureyri sem sviðsstjóri Náms- og kennsluþjónustusviðs, ekki síst sem fyrrverandi stúdent við skólann. Háskólar gegna sífellt mikilvægara hlutverki í að leiða breytingar framtíðarinnar með öflugri menntun, gagnrýnni hugsun, samfélagslegri ábyrgð og nýsköpun,“ er haft eftir Sigríði Huld á vef skólans. Þar segir að hún hafi yfirgripsmikla reynslu og þekkingu á stjórnun og námssamfélögum.

„Það er mér því mikilvægt að fá tækifæri til að leggja mitt af mörkum til þróunar kennslu og námsumhverfis á tímum hraðra breytinga. Ég hlakka til að vinna með stúdentum og starfsfólki að áframhaldandi uppbyggingu Háskólans á Akureyri,“ segir hún.

Fjölbreytt reynsla

Sigríður Huld sinnti starfi aðstoðarskólameistara VMA frá árinu 2006 og var skipuð skólameistari árið 2016. Því starfi sinnti hún til 1. ágúst 2025 „og tók þá við stöðu verkefnastjóra hjá Háskólanum á Hólum og Háskóla Íslands þar sem hún hefur unnið að innleiðingu og undirbúningi að stofnun háskólasamstæðu skólanna. Hún lauk námi í hjúkrunarfræði frá HA árið 1998 og árið 2000 lauk hún kennsluréttindum frá sama skóla. Hún hefur nýlega lokið meistaragráðu í opinberri stjórnsýslu frá Háskóla Íslands. Áður en Sigríður Huld hóf störf í VMA starfaði hún sem hjúkrunarfræðingur og verkefnastjóri fræðslumála við FSA [Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri] sem í dag er SAk [Sjúkrahúsið á Akureyri] og hefur einnig verið stundakennari við VMA og HA,“ segir á vef háskólans.

„Samhliða störfum sínum hefur Sigríður Huld verið virk í samfélagslegum verkefnum meðal annars sem bæjarfulltrúi á Akureyri, setið í stjórn Skólameistarafélags Íslands, SÍMEY og Iðnmenntar. Þá hefur hún tekið að sér ýmis trúnaðarstörf og setið í ýmsum vinnuhópum varðandi innleiðingu og breytingar á námsskrá og skólasamfélaginu.“