Fara í efni
Golf

Sjúkraþjálfun: Nýtt forrit gæti breytt miklu

Þorleifur Stefánsson, til vinstri, og Hannes Bjarni Hannesson eru á meðal þeirra sem standa að fyrirtækinu PTassistance.

Þeir Hannes Bjarni Hannesson og Þorleifur Stefánsson, sem standa meðal annars á bakvið fyrirtækið PTassistance, hafa þróað stafræna lausn sem ætlað er að einfalda samskipti milli sjúkraþjálfara og skjólstæðinga og styðja við árangursríka endurhæfingu. Lausnin er þegar farin að vekja athygli innan fagstéttarinnar og næstu mánuðir gætu ráðið miklu um áframhaldandi vöxt fyrirtækisins.


  • PTassistance er eitt af sjö nýsköpunarverkefnum sem DriftEA valdi í svokallaðan Hlunn og fá þau verkefni heildstæða aðstöðu, ráðgjöf og þjálfara hjá Drift EA. Auk þessa voru fjögur önnur öflug samfélagsleg verkefni valin í Drift EA sem fá ráðgjöf og aðstöðu.
  • Akureyri.net mun kynna umrædd verkefni á næstunni. Þegar hefur verið fjallað um Unni Verkbókhald, en frumkvöðlarnir á bak við það kalla Unni „besta vin iðnaðarmannsins“! og Orkey á Akureyri, sem framleiðir lífdísil úr íslenskri úrgangsolíu.

  • DriftEA er miðstöð frumkvöðla og nýsköpunar sem tók til starfa á Akureyri á síðasta ári.
  • Síðasta sumar fengu 13 verkefni inngöngu í nýsköpunarhraðal sem nefnist Slipptaka hjá DriftEA. Næsta skrefið að Slipptöku lokinni er Hlunnurinn incubator sem er að sænskri fyrirmynd en DriftEA er í samstarfi við sænska frumkvöðlasetrið Sting.

Á vefnum má nú finna yfir 300 tilbúnar æfingaáætlanir og meira en 2200 æfingamyndbönd sem sjúkraþjálfarar geta nýtt sér við þjálfun skjólstæðinga sinna. Markmiðið er skýrt: að gera sjúkraþjálfarann skilvirkari og skjólstæðinginn virkari.

Dagleg áskorun varð að nýrri lausn

Teymið samanstendur af sjö reyndum sjúkraþjálfurum með fjölþættan bakgrunn og einum viðskiptafræðingi. Að sögn þeirra Hannesar og Þorleifs kviknaði hugmyndin ekki í fundarherbergi heldur í daglegu starfi.

„Flest okkar í teyminu höfum unnið saman á Eflingu sjúkraþjálfun á Akureyri og hugmyndin kom upp fyrir mörgum árum sem lausn við þeim vandamálum sem við sjúkraþjálfarar stöndum frammi fyrir dags daglega,“ segja þeir. Helsta áskorunin hafi verið einföld en þrálát: að koma æfingum til skjólstæðinga á skipulegan og skilvirkan hátt.

Unnið við að taka upp myndband af æfingum.

Hannes og Þorleifur segja þróunarferlið hafa reynt á, sérstaklega þar sem fagfólk í heilbrigðisþjónustu þurfti að takast á við nýjar áskoranir í rekstri og tækni. „Við höfum langa reynslu af því að reka sjúkraþjálfunarfyrirtæki, en það er alveg nýr vinkill að þurfa að fara ofan í saumana á sölu, viðskiptalíkönum og kynningarmálum,“ segja þeir.

Þeir bæta við að stærsta áskorunin hafi verið að breyta vinnubrögðum í heilli fagstétt. „Stærsta áskorunin er að breyta starfsháttum sjúkraþjálfara það má líkja því við að breyta stefnu á olíuflutningaskipi. Það er hægt, en það er erfitt og tekur tíma.“

Vilja ná til fólks um allt land

Framundan er frekari þróun og aukið framboð efnis. Unnið er að því að fjölga æfingamyndböndum, meðal annars með aukinni sérhæfingu fyrir háls- og baksjúklinga í samstarfi við Heilbrigðisstofnun Vesturlands. Markmiðið er að þjónustan nýtist sem flestum – óháð búsetu.

„Við stefnum að því að geta þjónustað fólk vítt og breytt um landið, ekki síst þá sem búa fjarri helstu þjónustukjörnum. Æfingasafnið okkar gerir fólki kleift að stunda sína endurhæfingu óháð búsetu.“

Stór áfangi að komast inn í frumkvöðlaumhverfið hjá Drift

Þátttaka í frumkvöðlaumhverfinu hjá Drift EA reyndist mikilvægur vendipunktur, að þeirra sögn.

„Það var mjög stór áfangi að komast úr Slipptökunni hjá Drift EA inn í Hlunninn og fá að taka þátt í því frumkvöðlastarfi sem þar er boðið upp á. Það hefur verið einstaklega lærdómsríkt ferli.“

Heimasíða PTassistance. Hægt er að fara á síðuna með því að smella á myndina.

Þar hafi þeir fengið bæði ráðgjöf og fjármagn sem gert hafi þeim kleift að halda áfram þróun og kynningu á þjónustunni. Þá hafa PT assistance ferðast víða til að kynna lausnina og segja Hannes og Þorleifur að ferðalögin hafi ekki farið framhjá fólki.

„Við höfum ferðast saman vítt og breytt að kynna PT assistance og hefur hárprýði okkar víða vakið athygli.“ Þeir hlæja og bæta við að mögulega kíki þeir til Tyrklands í næstu heimsókn.

Þrátt fyrir mikla samveru segjast þeir enn hafa gaman af samstarfinu. „Við erum langt því frá að vera komnir með leið hvor á öðrum, þó að það styttist óðum í starfslok hjá þeim eldri,“ segja þeir og vísa þar til þess að Þorleifur hafi áður hætt störfum en tekið upp þráðinn á ný þegar þetta tækifæri gafst.

Framtíðarskrefin ráðast nú að hluta af niðurstöðum styrkumsókna sem unnið hefur verið að um nokkurt skeið. „Við fáum svör við styrkumsóknum á næstu mánuðum og fáist styrkir tryggir það áframhaldandi þróun og vöxt PTassistance.“

PTassistance mun taka þátt í Degi sjúkraþjálfunar í höfuðborginni þann 8. maí næstkomandi, sem er stærsta sameiginlega samkoma sjúkraþjálfara á Íslandi. „Þar verðum við með kynningarbás og ætlum okkur að breiða út boðskap okkar þar.“