Fara í efni
Golf

Akureyrarhlaup, N1, Pollar og Besta deildin

Fram undan er ein stærsta íþróttahelgi ársins á Akureyri með föstum liðum til áratuga. N1 mót drengja hefst á KA-svæðinu á miðvikudag og stendur fram á laugardag. Pollamót Þórs fer fram á Þórssvæðinu á föstudag og laugardag. Þá eiga Þór og KA bæði leik í Bestu deild karla í knattspyrnu á fimmtudag, Þór spilar á heimavelli og hitar upp fyrir Pollamótið, en KA á útileik gegn toppliðinu.

Akureyrarhlaup UFA á sér einnig áratuga hefð og fer það fram á fimmtudagskvöld. Hlaupið er jafnframt Íslandsmeistaramót í hálfu maraþoni.

MIÐVIKUDAGUR TIL LAUGARDAGS, 1.-4. JÚLÍ - fótbolti

KA heldur N1 mótið fyrir stráka í 5. flokki í 40. skipti núna í seinni hluta vikunnar. Mótið hefst á hádegi á miðvikudag og lýkur með úrslitaleikjum síðdegis á laugardag. Samkvæmt upplýsingum á mótsvefnum verða spilaðir um þúsund leikir á mótinu. Ýmislegt er um að vera í kringum mótið, meðal annars stór kvöldskemmtun á föstudag.

Allar upplýsingar um mótið, svo sem leikjadagskrár, úrslit og allt annað má finna á mótsvefnum, þar sem yfirsloðin er n1motid.is, en á vefsíðu mótsins má finna allar upplýsingar um strákamótið sem er á dagskránni í vikunni - N1 mótið. og á Facebook-síðu mótsins.

FIMMTUDAGUR 2. JÚLÍ - fótbolti, hlaup

Akureyrarhlaup atNorth og UFA fer fram á fimmtudagskvöld. Upphaf og endir hlaupsins er við Menningarhúsið Hof. Boðið er upp á þrjár vegalengdir 5 km, 10 km og hálfmaraþon. Keppni í hálfmaraþoni er jafnframt Íslandsmeistaramót í greininni. Þar er keppt um Íslandsmeistaratitla í hálfmaraþoni karla og kvenna og einnig um Íslandsmeistara í aldursflokkum.

Rás- og endamark er við menningarhúsið Hof og er hlaupið um Eyrina og meðfram ströndinni í átt að flugvellinum svo hlaupaleiðin er marflöt og vænleg til góðra afreka, eins og það er orðað á vef hlaupsins.

  • Akureyrarhlaup atNorth og UFA
    Ræsing í hálfmaraþoni (hægari) kl. 19:00
    Ræsing í hálfmaraþoni (hraðari) kl. 19:30
    Ræsing í 5 og 10 km hlaupi kl. 20:00
    Verðlaunaafhending kl. 21:30-22:00

Opið er fyrir skráningu til kl. 18:30 á keppnisdegi. Allar upplýsingar um hlaupið má finna á síðu hlaupsins á vef UFA - Akureyrarhlaup | UFA.

- - -

Þór tekur á móti KR á fimmtudag. KR vann fyrri leik liðanna um miðjan apríl, 5-2. KR tapaði 3-2 fyrir Keflavík á útivelli í síðustu umferð.

Eftir úrslit leikja í 12. umferðar Bestu deildar karla í knattspyrnu færðist Þór niður í neðsta sæti deildarinnar. Þór og FH eru jöfn að stigum eftir að FH gerði jafntefli við ÍBV á sama tíma og Þór tapaði heima fyrir Val. FH hefur nú náð í fimm stig í síðustu þremur leikjum, en sjö leikja taphrinu Þórs lauk með jafntefli við FH í 12. umfrðinni. Bæði lið eru með sjö stig, en FH með betri markatölu.

  • Besta deild karla í knattspyrnu, 13. umferð
    Þórsvöllur (VÍS-völlurinn, gervigrasvöllur á Ásnum) kl. 17.
    Þór - KR

- - -

Næsta verkefni KA er af stærri gerðinni, heimsókn á Víkingsvöllinn þar sem liðið mætir nær óstöðvandi Víkingum. Víkingsliðið tapaði að vísu  í undanúrslitum bikarkeppninnar fyrir fáeinum dögum, en hefur verið nær óstöðvandi í deildinni, komið með 12 sigra og eitt jafntefli, er með níu stiga forystu á toppnum að loknum 13 leikjum. Víkingur vann Breiðablik 4-1 á útivelli í síðustu umferð í deildinni, en tapaði svo fyrir þeim í undanúrslitum bikarkeppninnar á sunnudag.

Eftir fimm tapleiki í röð hefur KA sigið niður töfluna og er nú í 10. sætinu með tíu stig. KA tapaði fyrir Stjörnunni á útivelli í 12. umferðinni, 3-1. 

  • Besta deild karla í knattspyrnu, 13. umferð
    Víkingsvöllur kl. 19:15
    Víkingur - KA

FÖSTUDAGUR OG LAUGARDAGUR, 3.-4. JÚLÍ - fótbolti

Að venju er komandi helgi helguð fótboltamótum á báðum stóru íþróttasvæðum bæjarins. Á meðan yngri pollar mætast á N1 mótinu á KA-svæðinu er hið hefðbundna Pollamót Þórs fyrir eldri iðkendur á dagskrá á Þórssvæðinu. Þar er keppt í fjórum aldursflokkum karla, 28+, 38+, 48+ og 56+, og þremur flokkum kvenna, 20+, 28+ og 35+.

Keppni á Pollamótinu hefst að morgni föstudags og lýkur með úrslitaleikjum síðdegis á laugardag. Að auki er boðið upp á skemmtidagskrá í Hamri og ball í Boganum.

Enn er möguleiki að skrá lið í mótið því skráningarfrestur er til kl. 18 þriðjudaginn 30. júní. Allar upplýsingar um mótið má finna á vef þess - Pollamót Samskipa og á Facebook-síðu mótsins.