Glerárkirkja
Styrktu Matargjafir eftir góðgerðargolf
29.06.2026 kl. 13:00
Bjarni Þórhallsson, formaður Golfklúbbs Akureyrar, Sigrún Steinarsdóttir frá Matargjöfum Akureyrar og nágrennis og Íris Ósk Gísladóttir, sölu- og markaðsstjóri Skógarbaðann.
Skógarböðin og Golfklúbbur Akureyrar (GA) afhentu í dag Matargjöfum Akureyrar og nágrennis 500.000 króna styrk, fé sem safnaðist í tengslum við Arctic Open mótið sem fram fór á Jaðarsvelli í síðustu viku.
Eins og síðustu ár gafst fólki kost á að slá góðgerðarhögg af palli sem komið var upp við innganginn í Skógarböðin; það keypti bolta á staðnum og spreytti sig svo á að slá á flöt á lítilli eyju sem útbúin var í vatni neðan við böðin fyrir nokkrum árum, í um 75 metra fjarlægð.
„Markmið góðgerðarhöggsins er að styðja við mikilvægt samfélagsverkefni og urðu Matargjafir Akureyrar og nágrennis fyrir valinu í ár vegna þess ómetanlega starfs sem samtökin vinna fyrir einstaklinga og fjölskyldur á Norðurlandi,“ segir Íris Ósk Gísladóttir, sölu- og markaðsstjóri Skógarbaðanna.
„Við erum afar þakklát öllum þeim sem tóku þátt í góðgerðarhögginu. Það var ánægjulegt að sjá þátttakendur viljuga til að styðja við jafn mikilvægt málefni og Matargjafir Akureyrar og nágrennis,“ segir Íris.
Hún segir að samfélagsábyrgð sé Skógarböðunum mikilvæg „og fyrirtækið leggur áherslu á að styðja við verkefni sem hafa raunveruleg og jákvæð áhrif á nærumhverfið.“ Með samstarfi við Golfklúbb Akureyrar hafi tekist að skapa vettvang þar sem íþróttir, samvera og samfélagsleg ábyrgð fari saman og viðburðurinn sýni hversu miklu sé hægt að áorka þegar fyrirtæki, félög og einstaklingar leggi krafta sína saman.
„Það er auðvelt að gleyma því að sterkt samfélag byggist á fólki sem er tilbúið að rétta öðrum hjálparhönd. Við vonum að þessi styrkur verði til góðs og styðji við það mikilvæga starf sem Matargjafir Akureyrar og nágrennis sinna á hverjum degi,“ segir Íris Ósk.