Fara í efni
Gervigreind

Þórsarar léku vel en jafntefli í fyrsta leik

Þórsarar gera harða hríð að marki HK einu sinni sem oftar. Atli Þór Sindrason, lengst til hægri, náði ekki að nýta þetta færi snemma leiks en hann var síógnandi á vinstri kantinum og átti stórglæsilegt skot í stöng seint í leiknum. Mynd: Ármann Hinrik

Þór og HK gerðu 1:1 jafntefli í Boganum í kvöld í fyrstu umferð Lengjudeildarinnar, næst efstu deildar Íslandsmótsins í knattspyrnu. Leikurinn var mjög skemmtilegur og frammistaða Þórs lofar góðu fyrir sumarið. Þórsarar voru nær sigri; þeir höfðu töluverða yfirburði í seinni hálfleik, fengu ákjósanleg tækifæri til að skora og gengu því vonsviknari af velli en gestirnir úr Kópavogi sem ættu að vera mjög sáttir við eitt stig.

Dagur Orri Garðarsson skoraði fyrir HK strax á 6. mínútu en Ibrahima Balde jafnaði með næst síðustu spyrnu fyrri hálfleiksins. Strax og HK byrjaði á miðjunni eftir markið flautaði dómarinn til merkis um að leiktíminn væri liðinn.

Ekki er ofsagt að leikurinn hafi byrjað með látum; HK fékk dauðafæri þegar aðeins 20 sekúndur voru liðnar, nákvæmlega einni mínútu síðar voru Þórsarar mjög nálægt því að skora og HK komst yfir þegar fimm mínútur og 15 sekúndur voru búnar af leiknum. Upphafskaflinn var satt að segja ótrúlegur; langt er síðan sá sem þetta skrifar hefur orðið vitni að jafn fjörlegri byrjun á leik.

Þórsliðið lék vel í dag og einu vonbrigðin eru að mörkin yrðu ekki fleiri og stigin þar með þrjú.

Leikskýrslan

Nánar í fyrramálið

Með tæknina mér við hlið: Hlutverk gervigreindar í skólastarfi

Ástrós Guðmundsdóttir skrifar
07. janúar 2025 | kl. 17:30

Aðventa

Magnús Smári Smárason skrifar
10. desember 2024 | kl. 16:16

Magnús verkefnastjóri í gervigreind við HA

Skapti Hallgrímsson skrifar
03. desember 2024 | kl. 15:40

Stafræn ragnarök: Opinberun nýrra tíma

Magnús Smári Smárason skrifar
19. nóvember 2024 | kl. 17:30

Lýðræði á tímum gervigreindar

Magnús Smári Smárason skrifar
30. október 2024 | kl. 11:45

Nokkur heilræði varðandi gervigreind

Magnús Smári Smárason skrifar
01. október 2024 | kl. 09:30