Fara í efni
Fréttaannáll

Sætaskipan og matseðill í silfurbrúðkaupi 1914

SÖFNIN OKKAR – 115

Frá Minjasafninu á Akureyri_ _ _

Akureyri.net heldur áfram að opna dyr safnanna í bænum lesendum til fróðleiks og skemmtunar. Það er gert vikulega, á fimmtudögum.


Safngripur vikunnar kemur frá Minjasafninu á Akureyri: boðskort frá 1914 í silfurbrúðkaupsafmæli ásamt sætaskipan og matseðli.

Hjónin Oddur Carl Thorarensen lyfsali og konsúll og frú Alma Clara Margrethe Thorarensen (fædd Schiöth) áttu silfurbrúðskaupsafmæli þann 31. ágúst árið 1914. Að því tilefni efndu þau til veislu og buðu til sín fínasta fólki bæjarins. Jafnvel kom fólk víðar að, en til að mynda komu hjónin Klemens Jónsson þáverandi landritari og Anna María Kl. Jónsson (fædd Schiöth) frá Reykjavík. Alma og Anna voru systur og Klemens fyrrum sýslumaður í Eyjafjarðarsýslu og bæjarfógeti á Akureyri. Fjölluðu nokkur blöð stuttlega um samkvæmið og þótti það hafa tekist afar vel til. Einn boðsgestana, séra Matthías Jochumsson hafði samið kvæði til þeirra hjóna og það gerði einnig Guðmundur Guðmundsson (mun það að öllum líkindum vera Guðmundur skólaskáld), en hann var ekki í veislunni. Birtust bæði kvæðin á prenti í blöðum fljótlega eftir veisluhöldin.

Þau hjón Oddur og Alma létu prenta boðskort sem var fjögurra blaðsíðna bæklingur og líklega hefur hann verið borinn út til boðsgesta. Fremst var mynd af glæsihýsi þeirra hjóna, Aðalstræti 4 þar sem Oddur rak jafnframt apótek í mörg ár. Á næstu tveimur blaðsíðum var sætaskipan þannig að ekki færi nú á milli hvar hver og einn ætti að sitja! Aftan á bæklingnum var svo matseðill kvöldsins og var hann sannarlega ekki af verri endanum, en hann var svohljóðandi:

  • Súpa af hænsakéti. – Sherry.
  • Lax í rjómaídýfu. – Hvítt vín.
  • Hæns og sveppamauk. – Rauðvín
  • Ásspörgur og hrært smér.
  • Dilkasteik. – Kampavín.
  • Ísbýtingur (Vanilleís) – Ábætir. Portvín og Sherry.


Silfurbrúðkaupsljóð til Ölmu og Odds Thorarensen eftir Guðmund Guðmundsson. Birtist í Vísi, 1. september 1914.

Þau hjón voru þekkt á sínum tíma fyrir vegleg veisluboð, bæði innandyra en einnig í skrúðgarði sínum sunnan við apótekið þegar vel viðraði. Var silfurbrúðkaupið þar engin undantekning og má með sanni segja að öllu hafi verið til tjaldað þann 31. ágúst 1914. Án efa hefur verið þjónað til borðs og þrátt fyrir að vera 112 ára gefur matseðillinn ekkert eftir í samanburði við það sem finna má á fínustu veitingahúsum í dag!

Garðveisla hjá Ölmu og Oddi Carl Thorarensen apótekara. Annar frá vinstri er Hendrik Schiöth og að baki hans frú Anna kona hans, þá Jón Stefánsson ritstjóri, Oddur og frú Alma Thorarensen, fædd Schiöth. Yst til hægri sitja Hinrik Thorarensen og frú Svanlaug kona hans og að baki hennar er Olivia Thorarensen. Oddur C. Thorarensen rak Akureyrar Apótek á árunum 1886–1918. Þau hjón Oddur og Alma ræktuðu fagran trjá- og blómagarð sunnan við húsið. Ræktunin hófst 1896 og var hann því einn elsti skrúðgarður bæjarins.