Fara í efni
Framhaldsskólar

Íslenskt hæðarmet myndað í 21.000 fetum

SÖFNIN OKKAR – 136

Frá Flugsafninu á Akureyri_ _ _

Akureyri.net heldur áfram að opna dyr safnanna í bænum lesendum til fróðleiks og skemmtunar. Það er gert vikulega, á fimmtudögum.


Safngripur vikunnar er ljósmynd sem fallhlífastökkvarinn Sigurður Baldursson tók 12. september 1985 þegar sett var nýtt íslenskt hæðarmet. Fallhlífastökkvarar stukku þá úr 21 þúsund feta hæð, beint út í 50 gráðu frostið og þeystust niður. Hópurinn leigði Twin Otter vél Flugfélags Norðurlands til stökksins. Bjarki Hjaltason var flugstjóri og Baldvin Birgisson aðstoðarflugmaður.

Safngripur vikunnar er valinn af því tilefni að þann 23. september nk. verða liðin 50 ár frá stofnun Fallhlífaklúbbs Akureyrar.

Alvöru græjur! – Sigurður Baldursson vígalegur með búnaðinn sem hann notaði við myndatökur í fallhlífastökkinu, í mörg þúsund feta hæð á meira en 200 kílómetra hraða. Ljósmyndavél og myndbandsvél voru festar á hjálminn. Myndavélin var stillt – hraði, ljósop og fókus – áður en stokkið var og Siggi smellti af með rofa sem hann hélt á.

Síðsumars 1976 birtust auglýsingar í bæjarblöðum Akureyrar þess efnis að til stæði að halda námskeið í fallhlífastökki á Akureyri í byrjun septembermánaðar. Í góðri samantekt Sigurðar Aðalsteinssonar í tímaritinu Flugi ári síðar kemur fram að 12 þátttakendur hafi verið mættir á námskeiðið auk kennarans Sigurðar Bjarklind.

Námskeiðið hófst á fræðslu um þessa hugdjörfu íþrótt en síðan tók við verkleg kennsla. Sigurður Aðalsteinsson lýsir því skemmtilega hvernig hún fór fram: „Fljótlega kom að verklegri kennslu. Var hún meðal annars fólgin í að hlaupa fram af 2ja m háum palli og kútveltast á sérstakan hátt eftir jörðinni. Allir lifðu þessa raun af, en sumir þó naumlega. Voru þeir marga daga að ná sér af strengjum og marblettum.“

Sigurður Bjarklind segir svo um sama efni í samantekt sem hann afhenti Flugsafninu til varðveislu árið 2021:

„Bókleg kennslugögn voru í bæklingi eftir Sigurð Bjarklind sem nefndist Fallhlífastökk fyrir byrjendur og þar var fjallað um öryggisreglur og allan stökkferilinn frá upphafi til enda. Bókleg kennsla fór fram í skólastofu í Oddeyrarskóla sem gaf góðfúslega leyfi til að nota skólahúsnæði eftir að skólatíma lauk.

Metstökkið – Mynd sem Sigurður Baldursson tók 12. september 1985 þegar sett var nýtt íslenskt hæðarmet. Fallhlífastökkvarar stukku þá úr 21 þúsund feta hæð, beint út í 50 gráðu frostið og þeystust niður. 

Verkleg þjálfun fór fram á Akureyrarflugvelli. Þar fengust hækkanlegir landgöngustigar hjá FÍ og þar voru æfðar lendingar sem vissulega voru býsna harkalegar enda voru fallhlífar þess tíma litlar og féllu nokkuð hratt. Allir þurftu að læra að velta sér út úr lendingunni og dreifa högginu á líkamann.

Hver nemandi fékk a.m.k. 10 tíma verklega þjálfun á jörðu niðri með áherslu á útstökk, stjórnun fallhlífar, lendingu og öryggisreglur. Og allir nemendur þurftu að undirgangast læknisskoðun.“

Landsleikur – Sigurður Bjarklind, til vinstri, og Ómar Þór Eðvarðsson yfir Reykjavík miðvikudaginn 12. júní 1985. Fótbolti er festur við Sigurð eins og sjá má; þeir lentu á Laugardalsvelli rétt áður en landsleikur Íslands og Spánar í undankeppni HM hófst og boltinn var notaður í leiknum. Sigurður Baldursson var vitaskuld með í för og tók myndina.

Harkalegu lendingarnar voru þó ekki til að draga úr áhuganum og á miðju námskeiðinu, þann 9. september, var haldinn undirbúningsstofnfundur fallhlífaklúbbs sem skyldi vera kenndur við Akureyri. Stofnfundur Fallhlífaklúbbs Akureyrar (FKA) var svo haldinn á Bautanum þann 23. september og voru stofnendur félagsins eftirtaldir:

  • Guðmundur Brynjarsson
  • Guðrún Sigurðardóttir
  • Gunnar Aspar ritari
  • Jóhann Skírnisson
  • Jónas Hallgrímsson
  • Kolbrún Þórisdóttir
  • Magnús Pétursson
  • Ólafur Björnsson
  • Óskar Jósepsson
  • Sigurður Aðalsteinsson gjaldkeri
  • Sigurður Bjarklind stökkkennari
  • Steindór G. Steindórsson formaður
  • Þórarinn Hallsson

Við TF-FKI – Steindór G. Steindórsson, Gunnar Aspar og Sigurður Aðalsteinsson við flugvél Fallhlífaklúbbs Akureyrar sem var af gerðinni Cessna 180. Myndin er úr safni Flugsafnsins.

Síðar um veturinn var klúbburinn samþykktur sem fullgilt aðildarfélag að Flugmálafélagi Íslands og tíu árum síðar, 1986, stofnaði FKA Fallhlífasamband Íslands ásamt Fallhlífaklúbbi Reykjavíkur.

Fallhlífaklúbbur Akureyrar var starfræktur þar til um miðjan tíunda áratug síðustu aldar. Hann var löngum gróskumikið félag sem tók virkan þátt í flugsamfélaginu hér nyrðra og á landinu öllu, m.a. með framkvæmd og þátttöku á flugdögum auk þess sem félagsmenn sýndu sýningarstökk við ýmis tækifæri víða um land. Félagið eignaðist sína eigin flugvél vorið 1978, TF-FKI, af gerðinni Cessna 180, sem hafði verið innréttuð sérstaklega til fallhlífastökks. Í ágúst 1989 skemmdist vélin er henni hlekktist á í lendingu og var hún seld árið 1990 í því ástandi sem hún var í þá en fjárhagur félagsins leyfði ekki annað. Verulega dró úr starfsemi félagsins eftir söluna og að lokum lognaðist hún út af.