Fara í efni
Flokkur fólksins

Mikilvægur og sætur sigur á Víkingum

Hildur Anna Birgisdóttir, sem hér er með boltann í leik við Stjörnuna í sumar, kom mjög við sögu í kvöld. Hún skoraði fyrsta markið, lagði upp það næsta með frábærri sendingu og tók hornspyrnu sem leiddi til þriðja marksins. Mynd: Ármann Hinrik

Þór/KA vann afar sætan 3:0 sigur á Víkingum í Reykjavík í kvöld í Bestu deildinni, efstu deild kvenna í knattspyrnu. Víkingar sigruðu í fyrri leik liðanna á Akureyri 6:4 í lok maí en hafa reyndar ekki unnið leik síðan og eru á botni deildarinnar. Þór/KA hefur rétt úr kútnum undanfarið eftir mjög erfiða byrjun á mótinu en var þó fyrir kvöldið aðeins tveimur stigum fyrir ofan Val, sem er í efra fallsætinu (með tveimur stigum meira en Víkingur) þannig að stigin þrjú sem fengist í kvöld eru gríðarlega mikilvæg.

Leikurinn byrjaði fjörlega og bæði lið virtust í sóknarhug en það voru Víkingar sem komust í hættulegri færi.

Víkingar vildu fá víti strax á sjöttu mínútu þegar Augur markvörður Þórs/KA og Dagný Rún rákust saman; sú síðarnefnda fékk boltann skammt frá markinu, Augur kom í veg fyrir skot en ómögulegt er að segja hvort eitthvað var athugavert við þá varnartilburði. Ekki liðu nema tvær mínútur þar til Dagný Rún fékk boltann á svipuðum stað og áður en skaut framhjá úr dauðafæri. Þar slapp Þór/KA með skrekkinn.

  • Hildur Anna skorar – 1:0

Gestunum bitu frá sér þegar 10 mínútur voru liðnar, að loknum snörpum kafla heimaliðsins. Eftir spil á miðsvæðinu átti Elizabeth Moore fasta, góða sendingu út á hægri kant á Huldu Ósk Jónsdóttur. Hulda lék í átt að vítateignum og þegar fyrirgjöf hennar kom inn á miðjan teig var Hildur Anna Birgisdóttir mætt og skoraði með föstu skoti; boltinn fór undir Telmu Ívarsdóttur markvörð og í netið.

Eftir markið voru Víkingar meira með boltann en ógnuðu ekki að ráði fyrr en á 39. mín. að Jasmín Erla Ingadóttir komst inn í sendingu rétt utan vítateigs, lék inn á teig og komst í dauðafæri en hitti ekki markið. Afar klaufalegt bæði hjá gestunum og Jasmín.

Hulda Ósk Jónsdóttir, til vinstri, átti stoðsendinguna þegar Hildur Anna Birgisdóttir kom Þór/KA í 1:0 og skoraði þriðja markið. Elizabeth Moore, til hægri, gegnir mjög mikilvægu hlutverki afast á miðjunni hjá Akureyrarliðinu og stóð sig vel. Myndir: Ármann Hinrik

  • Erin Flurey skorar – 2:0

Aftur refsuðu leikmenn Þórs/KA heimamönnum fyrir að nýta ekki dauðafæri, ef svo má segja, því aðeins um mínútu eftir að Jasmín skaut framhjá úr dauðafæri kom Erin Flurey gestunum í 2:0.

Hildur Anna Birgisdóttir fékk boltann hægra megin á miðjum eigin vallarhelmingi, leit upp og sendi fram á Flurey sem spretti úr spori með tvo varnarmenn á hælunum; hvorugur þeirra komst nálægt boltanum og þegar þremenningarnir voru komnir inn á miðjan vítateig sendi sú bandaríska boltann snyrtilega í netið. Afar laglegt mark og sending Hildar Önnu var frábær.

Stutt lýsing á seinni hálfleik er þessi: Víkingar með boltann, senda hann hvað eftir annað inn á vítateig Þórs/KA en komast lítt áleiðis gegnum sterkum, norðlenskum varnarmúrnum.

Lið Þórs/KA sem hóf leikinn í dag. Aftari röð frá vinstri: Arna Sif Ásgrímsdóttir, Hildur Anna Birgisdóttir, María Dögg Jóhannesdóttir, Amalía Árnadóttir, Angela Mary Helgadóttir og Karen Hulda Hrafnsdóttir. Fremri röð frá vinstri: Elizabeth Moore, Alessandra Dorothy Augur , Erin Flurey, Hulda Ósk Jónsdóttir og Margrét Árnadóttir.

  • Hulda Ósk Jónsdóttir skorar – 3:0

Stundarfjórðungi fyrir leikslok brugðu gestirnir sér í sókn sem endaði með því að Þór/KA fékk hornspyrnu vinstra megin. Hildur Anna Birgisdóttir tók hornið og því kom ekki á óvart að hætta skapaðist við Víkingsmarkið: eftir að leikmenn börðust um boltann féll hann til Huldu Óskar í markteignum. Ekki kom að sök að Hulda sneri baki í markið því hún er fljót að hugsa og hugmyndarík, spyrnti boltanum fast með hælnum og í markinu endaði hann!

Allt er þá þrennt er; þrjú alvöru skot og þrjú mörk er ekkert annað en frábær nýting!

Víkingar reyndu áfram hvað þeir gátu, Augur markvörður sló boltann einu sinni fagmannlega frá eftir fyrirgjöf og þegar komið var í uppbótartíma skaut einn Víkingurinn boltanum í þverslá, en sigur Þórs/KA var í raun fyrir löngu í höfn.

Með sigrinum fór Þór/KA upp í 6. sæti, hefur nú 18 stig eins og Þróttur en er með hagstæðara markahlutfall, og Grindavík/Njarðvík er í 5. sæti með 19 stig.

Fyrir neðan Þór/KA og Þrótt er Fram í 8. sæti með 16 stig, Valur er í 9. sæti með 13 og Víkingur hefur 11 stig í 10. og neðsta sæti.

Leikskýrslan á vef KSÍ

Staðan í deildinni 

Þór/KA: Alessandra Dorothy Augur – María Dögg Jóhannesdóttir, Karen Hulda Hrafnsdóttir, Arna Sif Ásgrímsdóttir, Angela Mary Helgadóttir – Hulda Ósk Jónsdóttir (Agnes Birta Stefánsdóttir 80.), Margrét Árnadóttir, Elizabeth Moore, Hildur Anna Birgisdóttir (Emelía Blöndal Ásgeirsdóttir 87.), Amalía Árnadóttir (Karen María Sigurgeirsdóttir 71.) – Erin Flurey (Birgitta Rún Finnbogadóttir 80.).


Þór/KA á þrjá leiki eftir þar til deildinni verður skipt í tvennt. Sex efstu halda áfram keppni um Íslandsmeistaratitilinn og þau fjögur neðri  berjast áfram um að halda sér í deildinni. Tvö þau neðstu að lokinni þessari „framlengingu“ falla.

  • Föstudag 21. ágúst 18:00
    Þór/KA - Valur
  • Laugardag 29. ágúst 14:00
    Þróttur - Þór/KA
  • Sunnudag 6. september 14:00
    FH - Þór/KA