Fara í efni
Fimleikar

Bjartir tímar framundan hjá okkur

Sigurður Heiðar Höskuldsson þjálfari Þórs í kvöld. Mynd: Skapti Hallgrímsson

„Ég er svekktur að vinna ekki leikinn, miðað við seinni hálfleikinn okkar,“ sagði Sigurður Heiðar Höskuldsson þjálfari Þórs við akureyri.net eftir markalausa jafnteflið gegn KA í Bestu deild karla í fótbolta á KA-vellinum í kvöld.

„Fyrri hálfleikurinn var ekki góður. Við vorum svolítið stressaðir og uppspilið okkar virkaði ekki nægilega vel. Varnarleikurinn var að mestu leyti ágætur þangað til þeir fóru að svissa boltanum kanta á milli. Við réðum illa við það og hleyptum þeim of auðveldlega út úr þröngum stöðum sem við höfðum veitt þá í. Þá svissuðu þeir og tvöfölduðu á okkur og voru stórhættulegir í fyrri hálfleik.

En þeir nýttu það ekki, við breyttum um bæði sóknarleik og varnarleik í seinni hálfleik og mér fannst við taka yfir leikinn. Miðað við seinni hálfleikinn finnst mér að við hefðum átt að vinna en eitt stig í lokin er kannski sanngjarnt, miðað við hvernig við vorum í fyrri hálfleik.

Þetta var pínulítið sagan okkar í sumar. Við kláruðum ekki sóknirnar nægilega vel, fengum nægilega góðar stöður til þess, en þetta hefur verið veikleikinn hjá okkur. Við skjótum ekki nægilega mikið á markið, klárum ekki sóknirnar, vorum kannski orðnir of þreyttir til þess undir lokin í kvöld.

Síðan þurftum við að gera innáskiptingar á leiðinlegum stöðum, í staðinn fyrir að fá inn ferska fætur fram á við. En við hentum öllu í þetta, mér fannst hugarfarið og það sem við lögðum í þennan leik virkilega gott. Ég er ánægður með viðbrögð leikmanna í hálfleik, þeir áttuðu sig alveg á því að fyrri hálfleikur var ekki nægilega góður og þeir mættu algjörlega klárir í þann síðari.“

Þið eruð þá komnir með 12 stig og færist nær liðunum fyrir ofan. Þetta verður væntanlega sama baráttan áfram.

„Já, algjörlega. Nýi framherjinn okkar stóð sig vel og Þorri Ingólfsson kom frábærlega inn af bekknum, og við erum hrikalega ánægðir með það. Ég myndi segja að það væru bjartir tímar framundan okkur, miðað við síðustu leiki. Síðan fáum við vonandi einn til tvo leikmenn í viðbót og þá verðum við til alls líklegir í þessari baráttu.“

Er komið eitthvað á hreint í þessum leikmannamálum? Tveir útlendingar eru væntanlegir, hefur verið talað um.

„Við sjáum aðeins hverju þessi leit skilar, við tökum ekki bara einhverja leikmenn, þurfum að fá réttu mennina. En við fáum í það minnsta einn í viðbót.“

Stemningin var góð á vellinum í kvöld, hvernig var að taka þátt í þessum leik með tvö þúsund áhorfendum?

„Þetta var náttúrulega bara alveg geggjað og frábær stuðningur. Ég held að stuðningsmenn Þórs geti verið stoltir, sérstaklega af þessum seinni hálfleik, og því sem við hentum í þetta. Það var allt skilið eftir á vellinum. Þetta var ekki fallegasti fótboltinn, en það var viðbúið. Þetta var ógeðslega skemmtilegt, líf í þessu og læti, og svo tóku menn bara í spaðann hver á öðrum eftir leik,“ sagði Sigurður Heiðar Höskuldsson.