Fimm Þórsarar í U19 landsliðinu í fótbolta
Fimm Þórsarar eru í landsliðshópi U19 ára karla í knattspyrnu sem tekur þátt í fyrstu umferð undankeppni EM 2027. Leikmenn meistaraflokks Þórs, þeir Ásbjörn Líndal Arnarsson, Einar Freyr Halldórsson og Sverrir Páll Ingason eru í hópnum, auk Þórsaranna Egils Orra Arnarssonar og Sigurðar Jökuls Ingvasonar sem eru á mála hjá danska félaginu FC Midtjylland.
Í frétt á vefsíðu Þórs kemur fram að Ísland mætir Georgíu og Svartfjallalandi fyrstu umferðinni og verður riðillinn leikinn í Georgíu dagana 3.-10. júní. Liðið sem endar í efsta sæti riðilsins fer upp í A-deild undankeppninnar fyrir aðra umferð hennar.

Sigurður Jökull Ingvason og Egill Orri Arnarsson sem Þór seldi til FC Midtjylland í Danmörku árið 2024. Þeir eru báðir í herbúðum U19 liðs félagsins.