Jón Björn Hákonarson ráðinn sveitarstjóri
Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar hefur ráðið Jón Björn Hákonarson í starf sveitarstjóra. Hann tekur við af Finni Yngva Kristinssyni, sem ákvað fyrr á árinu að óska ekki eftir endurráðningu þegar kjörtímabilinu lyki. Mikill áhugi var á starfinu en alls bárust 35 umsóknir þegar það var auglýst laust til umsóknar í kjölfar sveitarstjórnarkosninganna í vor. Jón Björn mun hefja störf þann 1. ágúst nk.
Jón Björn hefur starfað að sveitarstjórnarmálum allt frá árinu 1994 og gegnt fjölmörgum trúnaðar- og forystuhlutverkum, meðal annars sem forseti bæjarstjórnar í Fjarðabyggð frá 2010-2020 og aftur frá 2023 en árin 2020-2023 gegndi hann starfi bæjarstjóra Fjarðabyggðar. Þá er hann formaður Samband íslenskra sveitarfélaga og hefur gegnt fjölmörgum trúnaðarstörfum á vettvangi sveitarfélaga, ásamt því að hafa m.a. verið stjórnarformaður Landsvirkjunar. „Ferill Jóns Björns einkennist af breiðri reynslu sem spanna bæði stjórnmál, stjórnsýslu og framkvæmdastörf,“ segir í frétt á vefsíðu Eyjafjarðarsveitar þar sem greint er frá ráðningunni.
„Sveitarstjórn bindur miklar vonir við að reynsla Jóns Björns, víðtækt tengslanet og skýr sýn á þróun sveitarfélaga muni nýtast vel í áframhaldandi uppbyggingu Eyjafjarðarsveitar og í þjónustu við íbúa samfélagsins,“ segir ennfremur í fréttinni.
Umsækjendur um starf sveitarstjóra voru:
Auður Thorberg
Bragi Þór Thoroddsen
Einar Kristján Jónsson
Elísabet Friðriksdóttir
Gísli Ólafsson
Hallur Guðmundsson
Hermann Jóhannesson
Jóhannes Valgeirsson
Jón Björn Hákonarson
Jón Hrói Finnsson
Jónas Egilsson
Katrín Dóra Þorsteinsdóttir
Kári Gautason
Ketill Sigurður Jóelsson
Kristján Óli Níels Sigmundsson
Lilja Birgisdóttir
Magnea Marinósdóttir
Magnús Ingi Jónsson
Maríanna H. Helgadóttir
Nanna Lind Stefánsdóttir
Ragna Berg Gunnarsdóttir
Sigríður Bjarnadóttir
Stefanía Guðrún Kristinsdóttir
Sævar Freyr Sigurðsson
Þorsteinn Þorsteinsson
10 manns drógu umsóknir sínar til baka.