Bæjarslagur í Bestu deildinni – MYNDIR
Barátta, spenna og stemning en mörkin vantaði, sagði Víðir Sigurðsson í fyrirsögn umfjöllunar sinnar um leik KA og Þórs í fyrrakvöld fyrir akureyri.net. Þessi rimma Akureyrarfélaganna í Bestu deildinni, efstu deild Íslandsmótsins í knattspyrnu var sem sagt markalaus, en fráleitt marklaus!
Kvöldið var fallegt, stuðningsmenn beggja liða voru í miklu stuði; hópur stuðningsmanna Þórs „hitaði upp“ í félagsheimilinu Hamri áður en haldið var upp á KA-svæði, en stuðningsmenn KA hittust í íþróttahúsi félagsins og komu sér í gírinn áður en haldið var út á völl. Þetta var fyrsti meistaraflokksleikurinn á nýjum gervigrasvelli KA – Greifavelli hinum þriðja; á norðvesturhluta félagssvæðisins, og glæsileg áhorfendastúka var notuð í fyrsta skipti. Um 2000 áhorfendur mættu á völlinn, hart var barist en allir fóru að líkindum vonsviknir heim því bæði lið þurftu bráðnauðsynlega á þremur stigum að halda í síharðnandi botnbaráttu en urðu að gera sér eitt stig að góðu hvort.
Hér lýkur veglegri umfjöllun akureyri.net um leikinn, með glæsilegri myndasyrpu. Ármann Hinrik og Skapti Hallgrímsson mættu á leikinn með myndavélarnar.