Fara í efni
BSO

Golf: Veigar kominn í 64 manna úrslit

Veigar Heiðarsson. Mynd: golf.is.

Veigar Heiðarsson úr Golfklúbbi Akureyrar er kominn í 64 manna úrslitakeppni golfmótsins South of Ireland Men’s Amateur Open Championship, sem stendur yfir á Írlandi. Leikinn var höggleikur á miðvikudegi og fimmtudegi og að honum loknum komust 64 efstu kylfingarnir af 150 þátttakendum áfram og við taka útsláttarviðureignir í holukeppnisformi.

Þetta golfmót er eitt stærsta áhugamannamót Írlands og saga þess nær alla leið aftur til ársins 1895. Keppendahópurinn er afar sterkur og í honum eru t.d. sex kylfingar sem eru á meðal 100 efstu á heimslista áhugamanna. Veigar var í góðri stöðu eftir fyrri hringinn í höggleiknum en þá lék hann á 67 höggum, fimm höggum undir pari vallarins, og var jafn öðrum í fimmta sæti. Ekki gekk eins vel á seinni hringnum en Veigar lék þá á 75 höggum, þremur yfir pari, og lauk leik á tveimur höggum undir pari samanlagt. Veigar fékk fleiri skolla heldur en fyrri daginn og mestu munaði um þrefaldan skolla á 3. holunni. En með því að fá örn á 18. holu lagaðist staðan þó talsvert og þegar upp var staðið reyndist hann gríðarlega mikilvægur. Veigar og aðrir sem luku leik á tveimur undir pari enduðu jafnir í 42.-54. sæti en tólf kylfingar sem enduðu á einu höggi undir pari þurftu að leika umspil um síðustu 10 sætin í 64 manna úrslitunum.

Í 64 manna úrslitunum mætir Veigar David Kitt, sem hafnaði í 4.-10. sæti í höggleiknum á 8 höggum undir pari. David þessi er 26 ára Íri sem hefur leikið vel í ár og m.a. sigrað á tveimur sterkum golfmótum á Írlandi. Sigurvegarinn úr viðureign þeirra kemst áfram í 32 manna úrslit en sá sem tapar er úr leik.

Viðureign þeirra félaga hefst kl. 10:30 í dag og hægt er að fylgjast með gangi mála hér.